Flugmanni dæmdar miskabætur vegna ólögmætrar uppsagnar 14. febrúar 2014 11:45 Manninum var gefið að sök að hafa dregið flugfreyju að sér og reynt að koma á hana kossi í óþökk alls fimm eða sex sinnum í ásýnd farþega. Mynd/Pjetur
Fyrrum flugmanni Icelandair voru í gær dæmdar miskabætur að upphæð 800 þúsund krónur vegna ólögmætrar uppsagnar. Honum var sagt upp þar sem hann þótti hafa sýnt af sér óviðeigandi hegðun og kynferðislega áreitni í flugi frá Kaupmannahöfn og ógnandi tilburði við flugvirkja eftir komuna til Keflavíkur. Málið á rætur sínar að rekja til þess að maðurinnn var á heimleið sem farþegi með farþegaflugvél Icelandair frá Hollandi í ágúst árið 2010 eftir að hafa lokið verkefni á vegum félagsins í Belgíu.Borinn þungum sökum Manninum var á fundi með flugrekstrarstjóra og starfsmannastjóra Icelandair í byrjun september sama árs gefið að sök að hafa sýnt af sér ógnandi hegðun, kynferðislega áreitni og mikla ölvun um borð í vél á leið heim frá Kaupmannahöfn, þar sem vélin hafði millilent. Á fundinum var hann beðinn um að svara fyrir sig. Um miðjan september var hann aftur boðaður á fund með starfsmannastjóra Icelandair þar sem honum var tjáð að hann ætti ekki lengur samleið með flugfélaginu og honum yrði vikið úr starfi. Með bréfi frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna frá 1. október 2010 var uppsögninni mótmælt sem tilefnislausri og ólögmætri og í kjölfarið stefndi flugmaðurinn Icelandair.Töldu uppsögnina lögmæta Icelandair byggði á því að uppsögnin hafi verið lögmæt, flugmaðurinn hafi með hegðun sinni gerst sekur um vítavert brot gegn ráðningarbundnum skyldum sínum. Hafi flugmaðurinn í umræddu flugi dregið flugfreyju að sér og reynt að koma á hana kossi í óþökk í hvert sinn sem hún veitti honum mat eða aðrar veitingar, alls fimm eða sex sinnum í ásýnd farþega. Einnig hafi hann sýnt flugvirkja ógnandi tilburði eftir komuna til Keflavíkur. Flugmaðurinn hafi verið sendur til Reykjavíkur með annarri bifreið Kynnisferða en áhöfnin og hafi einnig verið kvartað yfir framkomu hans þar. Hegðun hans og framkoma hafi því falið í sér mjög alvarlegt brot á starfsskyldum. Þá taldi Icelandair að alvarleiki brotsins verði einnig að skoðast í því ljósi að flugmaðurinn hafi verið kallaður fyrir forstjóra árið 1998 vegna kynferðislegrar áreitni af hans hálfi sama ár.Hæstiréttur féllst á miskabætur Í dómi Hæstaréttar kemur fram að þótt ljóst væri að hegðun flugmannsins hafi verið með þeim hætti að ekki sæmdi stöðu hans, þá sé hegðunin ekki þess eðlis að hún gæti réttlætt fyrirvaralausa uppsögn. Þá var Icelandair ekki talið hafa veitt flugmanninum áður áminningu vegna óviðeigandi hegðunar en telja yrði að slíkt væri forsenda þess að Icelandair væri heimilt að rifta ráðningarsamningnum. Auk þess var Icelandair talið hafa gengið lengra í ávirðingum gagnvart flugmanninum en efni stóðu til. Féllst Hæstiréttur því á miskabótakröfu mannsins.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Sjá meira