Án hamfara væru Íslendingar fleiri en ein milljón Stefán Árni Pálsson skrifar 3. september 2014 10:50 Íslendingar gætu verið yfir milljón manns. visir/daníel/skjáskot af vef vísindavefsins.
Á vef Vísindavefsins er spurningu varpað fram um það hversu margir Íslendingar væru ef allar þær hamfarir frá landnámi hefðu ekki gengið yfir. Þar kemur fram að mannfjöldi Íslendinga væri kominn yfir eina milljón ef ekki væri fyrir allskyns hamfarir. Upprunalega hljóðaði spurningin á þessa leið;Hver væri mannfjöldi á Íslandi í dag ef ekki hefðu verið allar þessar hamfarir, fjöldaflutningur fólks til útlanda, smitsjúkdómar o.s.frv., frá landnámi?Í svarinu eru þrenns konar áföll tekin fyrir og eru þau hungursneyð af völdum náttúruhamfara, smitsjúkdómar sem eiga við óvenjulega skæða faraldra af farsóttum og síðan fjöldaflutningar fólks. Til að mynda kemur fram að Ameríkuferðir hafi líklega fækkað landsmönnum um fimmtung á árunum 1872–1913. Aðferðin við útreikninginn er sú að gert er ráð fyrir sömu fólksfjölgun í áfallaárum og var í venjulegu árferði nálægt áföllunum. Fram kemur í grein Vísindavefsins að fyrsta manntalið á Íslandi hafi verið tekið árið 1703 og voru landsmenn þá 50.358.mynd/skjáskot af vef Vísindavefsins„Síðan er mannfjöldi reiknaður áfram ár hvert með fjölgunarhlutfalli samkvæmt opinberum mannfjöldagögnum, en í áfallaárum eða þegar gögn skortir (1704–1734) er byggt á áætlun um meðaltalsfjölgun í venjulegu árferði. Þannig er gert ráð fyrir að fólksfjölgunarhlutfall áfallaára á 18. öldinni hafi verið 6,22‰, en það er meðaltal af fjölgunarhlutfalli áranna 1734–1751 og 1759–1783. Um áfallaár á 19. öld er hlutfallið áætlað 8,3‰, en það er meðalfjölgun áranna 1817–1843. Önnur ár er reiknað með sömu hlutfallslegu fólksfjölgun og var í raun. Á Vesturferðatímanum 1872–1913 er þó miðað við fólksfjölgun eins og hún hefði verið ef engir hefðu flust til landsins né frá því. Eftir 1913, síðustu hundrað árin, er notast við óbreyttar tölur um hlutfallslega fólksfjölgun. En óbreytt hlutfall þýðir að fleiri bætast við þegar fleiri eru fyrir. Þannig ætti landsmönnum til dæmis að hafa fjölgað um full 20 þúsund þensluárið 2005, enda hefði fjöldi þeirra þá verið að ná milljón,“ segir á vef Vísindavefsins. Í þeirri áætlun sem Vísindavefurinn vinnur eftir kemur einnig fram að rétt fyrir aldamótin 1800 hafi mannfjöldi á Íslandi náð 100 þúsundum eða meira en tvöföldum þeim fjölda sem var í raun og veru í landinu.„Öld síðar er fólksfjöldinn orðinn 250 þúsund eða þrefalt meiri en í raun og veru. Hlutfallið hækkar dálítið á næstu árum, kemst í 1:3,2 árið 1913 og helst síðan óbreytt allt til 2013. Þá er íbúafjöldi á Íslandi orðinn 1.087.439 samkvæmt áætluninni.“mynd/skjáskot af vef Vísindavefsins.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Sjá meira