Spenna, spilling og ofbeldi í aðdraganda kosninga Heimir Már Pétursson skrifar 25. október 2014 13:57 Þingkosningar fara fram í Úkraínu í morgun. Vísir/AFP
Töluvert ofbeldi hefur verið fyrir þingkosningar sem fram fara í Úkraínu á morgun. Úrslit kosninganna munu hvorki draga úr spennu í austurhluta landsins þar sem fólk getur almennt ekki kosið né þeirri spennu sem ríkir í samskiptum Úkraínu við umheiminn, að mati Karls Garðarsson alþingismanns sem er við kosningaeftirlit í landinu. Karl Garðarsson þingmaður Framsóknarflokksins og Ögmundur Jónasson þingmaður Vinstri grænna eru báðir komnir til Úkraínu þar sem þeir munu sinna kosningaeftirliti í þingkosningunum á morgun. Petro porosjenkó forseti rauf þing í sumar og boðaði til þingkosninga til að freista þess að fá þing sem auðveldar honum að koma frumvörpum í gegn. En Karl segir að búist sé við að flokkur hans fái um 30 prósent atkvæða. Já, það er mikil spenna hér í Úkraínu. Það er eiginlega tvennt sem er aðalumræðuefnið í þessari kosningabaráttu í fyrsta lagi eru það átökin í austurhluta landsins,“ segir Karl. Sú umræða hafi yfirgnæft umræðuna en einnig sé mikið rætt um þá landlægu spillingu sem er í landinu. Flokkur forsetans sé stærstur en 28 flokkar bjóða fram í kosningunum á morgun. Talið er að flokkur forsetans muni fá um eða yfir 30 prósent atkvæða. „Síðan eru ansi margir flokkar sem koma þar á eftir með fylgi á bilinu fimm til tíu prósent. Þannig að það er ekkert afgerandi hvað þar varðar hverjir koma þar á eftir,“ segir Karl. Það geti því orðið flókið að mynda stjórn að loknum kosningum. En átakalínurnar eru milli þeirra sem vilja sterk tengsl við Rússland annars vegar og Evrópu hins vegar. „Það er talið að flokkur Porosjenkos muni reyna að mynda stjórn með tveimur eða þremur öðrum flokkum. Þjóðernisflokkum sem eru mjög sterkir hér. Þannig að flokkar sem vilja algeran aðskilnað frá öllu sem heitir austrið og vilja tengjast Evrópusambandinu eins mikið og hægt er,“ segir Karl. Líklega verði samstarf af þessu tagi niðurstaðan eftir kosningar. Hins vegar segir Karl að það skekki mjög kosningarnar að sjö til átta milljónir íbúa í austurhluta landsins þar sem átök hafa verið mikil undanfarna mánuði geti meira og minna ekki kosið. Það ásamt öðru leiði til þess að líkur séu á að Kommúnistaflokkur landsins þurkkist út af þingi. Í kosningunum er annars vegar kosið milli flokka í hlutfallskosningum og hins vegar er helmingur þingmanna kosinn í einmenningskjördæmum. „Og það hefur verið talsvert mikil spilling í kring um það. Vegna þess að það hefur komið í ljós að ansi margir fjársterkir einstaklingar sem eru að bjóða sig fram hafa verið að kaupa atkvæði. Þar að auki hefur verið talsvert mikið um ofbeldi í kosningabaráttunni. Það hefur mikið verið ráðist á frambjóðendur. Þannig að það hefur verið mjög mikið kvartað undan því hvernig kosningabaráttan hefur gengið hvað þetta varðar,“ segir Karl Garðarsson.
Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Harvey Weinstein lagður inn á spítala Erlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Fleiri fréttir Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Sjá meira