Innlent

Neyðarkallinn nú með línubyssu

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Leggja hönd á plóg. Árleg söfnun Landsbjargar hófst í gær með sölu nýs Neyðarkalls sem í ár heldur á línubyssu. Á rúmum 85 árum mun nálægt 2.500 manns hafa verið bjargað með fluglínutækjum hér við land. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ýtti Neyðarkallssölunni úr vör í Smáralind síðdegis í gær.
Leggja hönd á plóg. Árleg söfnun Landsbjargar hófst í gær með sölu nýs Neyðarkalls sem í ár heldur á línubyssu. Á rúmum 85 árum mun nálægt 2.500 manns hafa verið bjargað með fluglínutækjum hér við land. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ýtti Neyðarkallssölunni úr vör í Smáralind síðdegis í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Níunda árið í röð selja nú um helgina sjálfboðaliðar Neyðarkall björgunarsveitanna. Í ár er Neyðarkallinn með línubyssu.

Í tilkynningu Landsbjargar er vísað til þess að í bókinni Mannslíf í húfi, sögu Slysavarnafélags Íslands, komi fram að á þeim rúmu 85 árum sem Slysavarnafélagið Landsbjörg og forverar þess hafi starfað hafi nálægt 2.500 manns verið bjargað með fluglínutækjum þess af erlendum sem innlendum skipum sem strandað hafi hér við land.

„Fyrsta slíka björgunin var í mars 1931, tæpum fimm mánuðum eftir að slysavarnadeildin Þorbjörn í Grindavík var stofnuð og aðeins viku eftir að heimamenn höfðu fengið tilsögn í meðferð fluglínutækja,“ segir í tilkynningu Landsbjargar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×