Veikindi hjá velferðarsviði kosta borgina yfir hundrað milljónir segir borgarfulltrúi Hanna Ruth Ólafsdóttir skrifar 16. september 2014 06:30 Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir nauðsynlegt að bregðast við háum launakostnaði vegna veikinda starfsmanna.
Talið er að veikindi starfsmanna velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og fjarvistir vegna þeirra hafa kostað borgina 145 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á þeim tíma hafa laun og launatengd gjöld alls farið 256 milljónir króna fram úr áætlun eða fimm prósent. Unnið er að því á vegum borgarinnar að greina þessar miklu fjarvistir og veikindi starfsmanna á sviðinu. Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á velferðarsviði, fer fram á að skoðaðar verði ástæður þess að launakostnaður vegna veikinda sé eins hár og raun ber vitni. Áslaug lagði fram bókun á fundi velferðarráðs þann 4. september síðastliðinn vegna málsins. Í bókun Áslaugar kemur fram að launakostnaður velferðarsviðs á árinu líti út fyrir að verða nokkru hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. „Samkvæmt mínum upplýsingum frá borginni er einn hluti af skýringunni veikindi starfsmanna og álag vegna yfirvinnu og stórhátíða. En talið er að þessi kostnaður geti numið um 145 milljónum króna í 6 mánaða uppgjöri sviðsins. Við teljum nauðsynlegt að bregðast við og skoða hvort veikindin séu vinnutengd og þá hvort nauðsynlegt sé að gera breytingar á skipulagi á vinnu starfsmanna. Hvort eitthvað í vinnuumhverfi starfsmanna sé að hafa neikvæð áhrif á heilsu þeirra.“ Hún segir önnur svið borgarinnar standa frammi fyrir sama vanda þannig að búast megi við að samanlögð upphæð sé mun hærri þegar á heildina er litið. Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs bendir á að málið sé í skoðun hjá borginni en endanleg niðurstaða liggi ekki fyrir. „Kostnaðurinn hefur farið vaxandi með auknu álagi og breytingum á þjónustu sviðsins. Ég fagna því að þetta verði tekið til athugunar.“ Velferðarsvið Reykjavíkurborgar sér meðal annars um rekstur hjúkrunarheimila, húsnæðis- og búsetuúrræði, barnavernd, félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa, heimahjúkrun, dagvist aldraðra og ferðaþjónustu. Árið 2013 voru starfsmenn sviðsins 2.269 talsins í 1.536 stöðugildum og var meðalaldur þeirra 42 ár.
Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Fleiri fréttir Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Sjá meira