Launin námu 1,5 milljörðum króna Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 30. ágúst 2014 00:01 Hlynur Jónsson
Launakostnaður vegna slitastjórna Frjálsa fjárfestingabankans og SPRON nam 1.473 milljónum króna og launatengd gjöld námu 396 milljónum króna. Laun og launatengd gjöld voru því hátt í tvo milljörðum króna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu fjármálaráðherra um Dróma hf. Þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi báðu um skýrsluna. Drómi var eignarhaldsfélag sem fór með eignasafn SPRON og Frjálsa. Í því voru meðal annars lán sem SPRON og Frjálsi veittu einstaklingum og fyrirtækjum fyrir hrun. Í svarinu kemur fram að tölurnar séu unnar upp úr ársreikningum hlutafélaga, það er Dróma, á árunum 2009 til 2012 en það eru dótturfélögin Steinsnes ehf., Rekstrarfélag SPRON hf. og SPRON Factoring sem mynda Dróma Frjálsa hf. fyrir árin 2010 til 2012 og SPRON verðbréf fyrir sama tímabil. Það eru slitafélögin sem borga launin en ekki ríkissjóður eða Fjármálaeftirlitið. Í skýrslunni kemur fram að ársreikningar síðasta árs liggi ekki fyrir hjá fjármálaráðuneytinu. Því má gera ráð fyrir að launakostnaðurinn hafi hækkað talsvert. Í flestum tilvikum er það sama fólkið sem skipar stjórnirnar, en af svari fjármálaráðherra er ekki hægt að ráða hvað hver og einn fær í laun en gera má ráð fyrir að þeir sem sitja í flestum stjórnunum hafi fengið stærsta bitann af kökunni.
Alþingi Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Fleiri fréttir Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Sjá meira