Allt að 46% verðmunur á skólabókum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. ágúst 2014 11:29 Nemendur á leið í Ísaksskóla. Vísir/Anton
Mikill verðmunur er á skólabókum fyrir framhaldsskóla í bókaverslunum á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt könnun sem verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands stóð fyrir á þriðjudaginn. Farið var í 6 verslanir og skoðað verð á 32 algengum nýjum námsbókum og borið saman innkaups- og útsöluverð á 25 notuðum námsbókum á þremur skiptibókamörkuðum.Þá er margfaldur munur á innkaupalistum grunnskóla landsins líkt og Fréttablaðið fjallar um í dag.Griffill oftast með lægsta verðið Af nýjum skólabókum átti A4 Skeifunni til flestar bækur eða 30 af 32, Eymundsson Kringlunni og Griffill Laugardalshöll áttu til 28 titla. Í helmingi tilvika var á milli 30-45% verðmunur á hæsta og lægsta verði verslananna. Griffill var oftast með lægsta verðið á nýjum bókum í þessari verðkönnun en 17 titlar af 32 voru ódýrastir hjá þeim. A4 kom þar á eftir með lægsta verðið á 12 titlum. Eymundsson var oftast með hæsta verðið á nýjum bókum eða á 25 titlum af 32. Mestur verðmunur í könnuninni af nýjum bókum var á bókinni “Uppspuni: Nýjar íslenskar smásögur“, en bókin var dýrust á 4.299 kr. hjá Eymundsson en ódýrust á 2.950 kr. hjá Griffli sem er 1.349 kr. verðmunur eða 46%. Minnstur verðmunur var að þessu sinni 7% á enskubókinni “In line for reading“, hún var var dýrust á 1.799 kr. hjá Eymundsson en ódýrust á 1.685 kr. hjá Forlaginu Fiskislóð og A4. Mikill munur á verði skiptibókamarkaðanna Af þeim þremur bókaverslunum sem starfrækja einnig skiptibókamarkað, var A4 oftast með hæsta útsöluverðið á notuðum skólabókum sem skoðaðar voru eða á 19 titlum af 25. Grifill var oftast með lægsta útsöluverðið eða á 18 titlum og Eymundsson á 11. Mestur verðmunur var á álagningu skiptibókamarkaðanna hjá A4, en munur á innkaupsverði og útsöluverði var á bilinu 60-80%. Hjá Eymundsson og Griffli var munurinn á bilinu 30-50%. Í um 40% tilvika er sama innkaups og útsöluverð á notuðum bókum, hjá Griffli og Eymundsson. Námsmenn ættu að hafa hugfast að verð á algengum bókatitlum breytast oft ört hjá verslunum við upphaf skólaárs að því er segir í frétt ASÍ. Úrval notaðra bóka á skiptibókamörkuðum var mjög misjafnt eftir verslunum þegar könnunin var gerð en getur breyst með skömmum fyrirvara.Kannað var verð á nýjum bókum í eftirtöldum verslunum: Bóksölu stúdenta Háskólatorgi, Eymundsson Kringlunni, A4 Skeifunni, Griffli Laugardalshöll, Forlaginu Fiskislóð og Bókabúðinni Iðnú Brautarholti. Kannað var verð á notuðum bókum í eftirtöldum verslunum: Eymundsson Kringlunni, A4 Skeifunni og Griffli Laugardalshöll.Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Tengdar fréttir Margfaldur verðmunur á innkaupalistum skóla Samkvæmt innkaupalistum grunnskóla landsins á sölusíðunni Heimkaup kostar frá sjö þúsund krónum upp í tæpar þrjátíu þúsund að byrja í 8. bekk. Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur hvetur foreldra til að nýta eldra skóladót en ekki kaupa blint inn samkvæmt listunum. 21. ágúst 2014 00:01 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira
Margfaldur verðmunur á innkaupalistum skóla Samkvæmt innkaupalistum grunnskóla landsins á sölusíðunni Heimkaup kostar frá sjö þúsund krónum upp í tæpar þrjátíu þúsund að byrja í 8. bekk. Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur hvetur foreldra til að nýta eldra skóladót en ekki kaupa blint inn samkvæmt listunum. 21. ágúst 2014 00:01