Um þúsund látnir í átökum í Úkraínu frá samþykkt vopnahlés Atli Ísleifsson skrifar 20. nóvember 2014 21:20 Um milljón neyðst til að flýja heimili sín frá því að átök brutust út í landinu í apríl. Vísir/AFP
Að meðaltali hafa þrettán manns látist í átökum í austurhluta Úkraínu á hverjum degi frá því að samið var um vopnahlé milli stríðandi fylkinga þann 5. september síðastliðinn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Á þeim átta vikum sem liðnar eru frá gerð samkomulagsins hafa 957 manns verið drepnir, en að sögn Sameinuðu þjóðanna hafa bæði úkraínski stjórnarherinn og sveitir aðskilnaðarsinna gerst sek um brot á vopnahléssamkomulaginu. Í skýrslunni er sagt frá að algert stjórnleysi ríki í héröðunum Donetsk og Luhansk sem eru að stærstum hluta á valdi aðskilnaðarsinna sem eru á bandi Rússlandsstjórnar. Þá er einnig greint frá trúverðugum ásökunum um ýmiss konar brot framin af hersveitum Úkraínuhers.Í frétt BBC segir að Rússar hafi verið sakaðir um að hafa ýtt undir óróann í landinu með því að koma hergögnum til aðskilnaðarsinna. Rússar hafa þó staðfastlega neitað slíkum ásökunum. Arseny Yatseniuk, forsætisráðherra Úkraínu, sagði í dag að aðgerðir Vladimír Pútín Rússlandsforseta væru ógn við alla, heimsskipan og heimsfriðinn. Þá lýsti Dalia Grybauskaite, forseti Litháens, Rússlandi sem „hryðjuverkaríki“ í útvarpsviðtali. Pútín segir hins vegar að „alda svokallaðra litabyltinga“ [svo sem í Úkraínu, Georgíu og Kigisistan] hafi haft „hörmulegar afleiðingar“ í för með sér. „Fyrir okkur er þetta bæði lærdómur og viðvörun. Við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir að nokkuð slíkt gerist í Rússlandi,“ sagði Pútín á fundi með öryggisráði landsins. Alls hafa 4.317 látist og um milljón neyðst til að flýja heimili sín frá því að átök brutust út í landinu í apríl.
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Fleiri fréttir Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Sjá meira