Leigusalar mega fara fram á persónuupplýsingar Samúel Karl Ólason skrifar 27. nóvember 2014 11:55 Í niðurstöðu stofnunarinnar segir að ljóst sé að í flestum tilvikum sé beiðni leigusala lögð fram í eignarvörslutilgangi. Vísir/Vilhelm
Samtök leigjenda sendu óskuðu í sumar eftir áliti Persónuverndar á heimildum leigusala til að fara fram á viðkvæmar persónuupplýsingar umsækjenda. Þar með talið upplýsingar um staðfestingu á atvinnu, launaseðla að minnsta kosti síðustu þriggja mánaða, sakavottorð, hjúskapastöðu og fleira. Samtökin óskuðu einnig eftir því hvort um væri að ræða brot á persónuverndarlögum og hvaða úrræði stæðu leigjendum til boða. Persónuvernd segir beiðni leigusala um upplýsingar um leigutaka vera samkvæmt lögum. Í niðurstöðu stofnunarinnar segir að ljóst sé að í flestum tilvikum sé beiðni leigusala lögð fram í eignarvörslutilgangi. Til að koma í veg fyrir að hann verði fyrir tjóni, en leigusölum eru tryggð ákveðin réttindi í lögum varðandi slíkt. „Honum ber hins vegar að leggja mat á, áður en óskað er eftir viðkvæmum persónuupplýsingum, hvaða upplýsingar séu honum nauðsynlegar til að hann geti lagt mat á áreiðanleika leigutaka. Í slíkum tilvikum mætti ímynda sér að leigusala væri í ákveðnum tilvikum heimilt að óska eftir umsögn fyrrverandi leigusala sem einstaklingur var áður leigutaki hjá. Á grundvelli þeirra upplýsinga gæti hann síðan tekið ákvörðun um hvort nauðsynlegt sé að óska frekari upplýsinga, t.a.m. með framlagningu sakavottorðs eða staðfestingu atvinnuveitanda, staðfestingu launa eða frekari umsagna.“ Þó það sé heimilt samkvæmt lögum að biðja um persónuupplýsingar, verður leigusali að ganga úr skugga um að öll vinnsla upplýsinganna fullnægi kröfum og lögum. Meðal annars um meðalhóf og sanngirni. Því viðkvæmari sem upplýsingar eru því meiri kröfur verður að gera um meðalhóf og sanngirni.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira