Barnaleg og þrjósk umræða um hvalveiðar Bjarki Ármannsson skrifar 14. september 2014 14:36 Helgi Hrafn Gunnarsson. Vísir/GVA „
Ég myndi halda að þessi þingsályktunartillaga fari í gegn vegna þess að þetta varðar bara það að komast að því hvort þetta borgi sig eða ekki,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata. Helgi Hrafn er einn flutningsmanna þingsályktunartillögu um að fela fjármálaráðherra að láta meta hagsmuni Íslendinga vegna hvalveiða í íslenskri lögsögu. Matið ætti að vera óháð og kanna verðmæti útflutnings á hvalkjöti, kostnað við kynningu af hálfu stjórnvalda vegna hvalveiðistefnunnar og álit um áhrif stefnunnar á stöðu Íslands á alþjóðavettvangi. „Þetta er bara einn hluti af umræðunni,“ segir Helgi Hrafn. „Siðferðislegi hlutinn, hvort það sé siðferðislegt að veiða hvali, er óháð þessari tillögu og annar hluti af umræðunni. Það hver okkar réttur sem þjóð er, er einnig annar hluti af umræðunni. En það hlýtur að skipta höfuðmáli í þessari umræðu hverjar nákvæmlega tölurnar eru. Og hverjar staðreyndirnar eru gagnvart þessu, hvort þetta borgi sig.“ Hvalveiðar Íslendinga hafi lengi verið umdeildar og bakað okkur óvinsældir nokkurra erlendra ríkja, einna helst Bandaríkjanna. Skemmst er að minnast þess að í byrjun apríl sendi Barack Obama Bandaríkjaforseti frá sér minnisblað þar sem hann gagnrýndi harðlega veiðar Íslendinga á langreyði og sagði þær stefna tegundinni í voða. Sagðist hann vilja endurskoða samstarf ríkjanna tveggja í ljósi hvalveiðanna. „Við hljótum að meta samskipti okkar við önnur ríki,“ segir Helgi Hrafn. „Og þegar sjálfur forseti Bandaríkjanna gerir veður yfir þessu, þá hefur það áhrif á okkar hagsmuni hvort sem okkur líkar það betur eða verr.“ Helgi Hrafn segir að þjóðarstolt og þrjóska Íslendinga eigi það til að þvælast fyrir umræðunni um hvalveiðar. „Það er oft svolítið barnaleg orðræða sem á sér stað um hvalveiðar þegar það kemur að samskiptum okkar við önnur ríki. Það er svolítið fljótt í þrjóskuna og þjóðarstoltið og allt það.“
Tengdar fréttir Bandaríkin vilja efla hvalaskoðun á Íslandi Styrknum er ætlað að styðja við bakið á samtökunum til að auka fagmennsku og samstarf innan greinarinnar. 23. ágúst 2014 00:01 Bjarni svarar Bandaríkja-mönnum fullum hálsi Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir Bandaríkjamenn ekki hafa nein efni á að segja öðrum fyrir í siðferðilegum álitaefnum og virðist ekki vilja að gefa tommu eftir hvað varðar hvalveiðar. 19. júní 2014 11:30 Íslendingar verði að taka hvalveiðar til endurskoðunar Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir að Íslendingar verði að taka hvalveiðar til endurskoðunar og meta hver ávinningur þjóðarbúsins af þeim er í raun og veru. Hún segir samanburð fjármálaráðherra á hvalveiðum Íslendinga og dauðarefsingum í Bandaríkjunum ekki eiga erindi. 22. júní 2014 16:04 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira
Bandaríkin vilja efla hvalaskoðun á Íslandi Styrknum er ætlað að styðja við bakið á samtökunum til að auka fagmennsku og samstarf innan greinarinnar. 23. ágúst 2014 00:01
Bjarni svarar Bandaríkja-mönnum fullum hálsi Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir Bandaríkjamenn ekki hafa nein efni á að segja öðrum fyrir í siðferðilegum álitaefnum og virðist ekki vilja að gefa tommu eftir hvað varðar hvalveiðar. 19. júní 2014 11:30
Íslendingar verði að taka hvalveiðar til endurskoðunar Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir að Íslendingar verði að taka hvalveiðar til endurskoðunar og meta hver ávinningur þjóðarbúsins af þeim er í raun og veru. Hún segir samanburð fjármálaráðherra á hvalveiðum Íslendinga og dauðarefsingum í Bandaríkjunum ekki eiga erindi. 22. júní 2014 16:04