Hörð viðbrögð vegna kanínudrápsins í Öskjuhlíð Kjartan Atli Kjartansson skrifar 15. september 2014 13:41 Hér má sjá það sem Hildur, Berglind og Egill sögðu um kanínudrápið á Twitter.
Frétt Vísis um kanínuna sem var rist á hol í Öskjuhlíðinni og fannst í gær hefur vakið mikla athygli. Á samskiptamiðlinum Twitter má sjá marga lýsa yfir reiði sinni vegna drápsins og meðferðarinnar á kanínuhræinu. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillz: „Ég vil 150 ára fangelsi á geðsjúklinginn sem drap litlu krúttlegu kanínuna í Öskjuhlíðinni!“Berglind Pétursdóttir sendi þeim sem drap kanínuna skilaboð: „ÞÚ ÞARNA SEM RISTIR KANÍNUR Á HOL Í ÖSKJUHLÍÐINNI: ÉG HATA ÞIG“Hildur Lilliendahl hafði greinilega ekki frétt af málinu og spurði Berglindi, á Twitter, hvað hún ætti við. Þá var Hildi bent á frétt Vísis og viðbrögðin voru: „ANDSKOTINN.“ Í athugasemdakerfi Vísis lýsa margir yfir reiði sinni og furða sig á því að nokkur geti gert svona við dýr.Gæti fengið tveggja ára fangelsi „Þetta er skýrt brot á fjölda laga og gæti sá sem gerði þetta átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi,“ sagði Árni Stefán Árnason, lögfræðingur sem hefur sérhæft sig í rétti dýra, í samtali við Vísi fyrr í dag. Árni sagði að af myndinni af dæma væri þetta skýr ásetningur. „Ég veit ekki hvað rekur menn út í að gera þetta. Ég veit ekki hvaða hvatir liggja þarna að baki. Svo virðist sem einhverjir njóti þess að kvelja dýr. Þetta hefur alla vega ekki verið gert til þess að afla sér matar, því skrokkurinn er skilinn eftir. Þetta eru því einhverjar aðrar hvatir,“ sagði hann í morgun. Ekki er langt síðan að Vísir sagði frá öðru dæmi um hrottalega meðferð á dýrum. Í lok síðasta mánaðar var lögreglan kölluð út í sumarhúsabyggð, rétt norðan við Borgarnes, þar sem hundur hafði verið skilinn eftir í blaðagámi. Hundurinn var lifandi þegar hann fannst, en var svo illa haldinn að ákveðið var að aflífa hann. „Þetta er afskaplega alvarlegur hlutur og því miður eiga umráðamenn það til að bregðast svona við í stað þess að leita dýralæknis. Þetta lýsir ákveðnu virðingaleysi fyrir lífi dýra og skorti á samvisku að virða þann rétt dýranna til að fá að njóta aðhlyniningar. Kannski hefði verið hægt að bjarga þessum hundi en engin viðleitni var til þess þó það sé skylt samkvæmt dýraverndunarlögum,“ sagði Árni Stefán í samtali við Vísi um það mál. Hér að neðan má sjá umræður á Twitter um kanínudrápið.Ég vil 150 ára fangelsi á geðsjúklinginn sem drap litlu krúttlegu kanínuna í Öskjuhlíðinni!— Egill Einarsson (@EgillGillz) September 15, 2014 @kristjanatli @ergblind ANDSKOTINN.— Hildur Lilliendahl (@snilldur) September 15, 2014 ÞÚ ÞARNA SEM RISTIR KANÍNUR Á HOL Í ÖSKJUHLÍÐINNI: ÉG HATA ÞIG— Berglind Festival (@ergblind) September 15, 2014
Tengdar fréttir Hundur fannst í ruslagámi: „Kannski hefði verið hægt að bjarga þessum hundi“ Árni Stefán Árnason, lögfræðingur sem sérhæft hefur sig í réttindum dýra, segir atburðinn að sönnu skelfilegan. 10. september 2014 15:47 Hundur fannst í ruslagámi Hundurinn var í strigapoka í ruslagámi við sumarbústaðabyggð norðan Borgarness. 9. september 2014 22:13 „Sá sem gerði þetta gæti átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi“ Hræ af kanínu sem var búið að rista á hol fannst í Öskjuhlíð í gær. Lögfræðingur sem hefur sérhæft sig í rétti dýra segir þetta vera stórfellt brot. 15. september 2014 11:37 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira
Hundur fannst í ruslagámi: „Kannski hefði verið hægt að bjarga þessum hundi“ Árni Stefán Árnason, lögfræðingur sem sérhæft hefur sig í réttindum dýra, segir atburðinn að sönnu skelfilegan. 10. september 2014 15:47
Hundur fannst í ruslagámi Hundurinn var í strigapoka í ruslagámi við sumarbústaðabyggð norðan Borgarness. 9. september 2014 22:13
„Sá sem gerði þetta gæti átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi“ Hræ af kanínu sem var búið að rista á hol fannst í Öskjuhlíð í gær. Lögfræðingur sem hefur sérhæft sig í rétti dýra segir þetta vera stórfellt brot. 15. september 2014 11:37