Hundur fannst í ruslagámi: „Kannski hefði verið hægt að bjarga þessum hundi“ Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar 10. september 2014 15:47 Árni Stefán fer hörðum orðum um þá sem fara með dýr á þennan hátt.
Lögregla var kölluð að ruslagámi við sumarbústaðabyggð norðan Borgarness fyrir nokkrum dögum og fann þar stóran Border Collie-hund nær dauða en lífi. Eigandi sumarhúss hafði ætlað að kasta rusli í gáminn en heyrði þá þungan andardrátt berast þaðan og þorði ekki að kanna það nánar eins og Vísir greindi frá í gær. Hann kallaði til lögreglu sem komst að því að í gámnum var stór Border Collie-hundur í strigapoka. Hann var með áverka, líkt og á hann hafi verið ekið og var ekki um annað að ræða en aflífa dýrið þá þegar. Að sögn lögreglu gerðist þetta fyrir nokkrum dögum, 27. ágúst, og hefur lögregla rannsakað málið, til dæmis með því að ræða við bændur í nágrenni en ekki komist að neinu sem gæti varpað frekara ljósi á það. Þetta var ekki gamall hundur, segir varðstjóri í samtali við fréttastofu, hann var ekki örmerktur né með ól. Árni Stefán Árnason, lögfræðingur sem sérhæft hefur sig í réttindum dýra, segir atburðinn að sönnu skelfilegan. Hann segir atvik sem þessi ekki algeng en setur þó þann fyrirvara á að líkast til viti fólk minnst um það þegar eitthvað á borð við þetta komi uppá. Árni vonar að þessi dýrafantur, sem skyldi svo við dýrið, sofi ekki vegna slæmrar samvisku og ef hann finnst verði gefin verði út ákæra og hann sektaður ærlega og verði bannað að halda dýr fyrir lífstíð. „Þetta er afskaplega alvarlegur hlutur og því miður eiga umráðamenn það til að bregðast svona við í stað þess að leita dýralæknis. Þetta lýsir ákveðnu virðingaleysi fyrir lífi dýra og skorti á samvisku að virða þann rétt dýranna til að fá að njóta aðhlyniningar. Kannski hefði verið hægt að bjarga þessum hundi en engin viðleitni var til þess þó það sé skylt samkvæmt dýraverndunarlögum.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira