Læknir um eyrnakerti: "Ósigur skynseminnar“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 1. september 2014 10:48 Björn Geir segir að eyrnakerti virki ekki og bendir á niðurstöður vísindarannsókna máli sínu til stuðnings. „
Eyrnakerti eru hvorki virk né hættulaus. Þau soga ekki einu sinni merg, hvað þá annað. Sala þeirra og notkun fer enn fram á Íslandi þó víða um heim sé varað er við notkun þeirra vegna slysahættu og gagnsleysis. Loforð um gagn og virkni í auglýsingum eru ýmist upplogin eða stórlega ýkt og væntanlega brot á lögum um neytendakaup (15. og 16. gr.), þjónustukaup (5. og 9. gr.) og sennilega fleiri laga- og reglubókstöfum.“ Þetta skrifar Björn Geir Leifsson skurðlæknir, á bloggsíðu sína, í umfjöllun um svokölluð Eyrnakerti. Sala á slíkum kertum fer fram hér á landi og bendir Björn Geir á nokkra söluaðila í umfjöllun sinni. Hann segir kertin ekki sjúga merg, eins og auglýsendur halda fram. „Eyrnakerti eru mjög einföld að gerð. Pappír eða tuska er bleytt upp í bráðnu vaxi og snúið utanum sívala stöng og látið stirðna. Þannig verður til holt "kerti". Gjarnan er eitthvað ilmefni haft með til að styrkja dásamlegheitin,“segir hann og bætir síðar við: Auðvitað gera huggulegheitin og slökunin sitt tímabundna gagn en það má alveg koma því til leiðar án þess að nota svona kerti. Í fyrsta lagi þá myndast ekkert sog. Þetta hafa margir prófað á ýmsan hátt og komist að því að það er hreinlega ekki rétt. Í öðru lagi þá er "drullan" sem safnast inni í kertinu hvorki eyrnamergur eða dularfull toxín eða úrgangsefni úr líkamanum. Þetta er einfaldlega storknað vax úr kertinu sjálfu með smá sóti í sem litar það brúnleitt eins og eyrnamerg. Prófið bara að brenna svona kerti án þess að hafa það í eyranu.Það er enginn möguleiki að eyrnakerti nái að soga eyrnamerg úr eyrunum á þennan hátt. Til þess þyrfti svo mikið sog að það gæti rifið hljóðhimnuna,“ skrifar Björn Geir. Hann tiltekur svo fleiri rök fyrir því að eyrnakertin svokölluðu virki ekki og bendir á söluaðila:„Í þriðja lagi þá er enginn samgangur milli ytra eyrans og annarra holrúma höfuðsins. Sá (hómeópati?) sem skrifaði um "virkni" eyrnakerta á vef Heilsuhvols hefur væntanlega sofið fast í líffræðitímunum í barnaskóla. Ef gat eða rör er í hljóðhimnunni er reyndar til staðar op inn í miðeyrað en það breytir engu öðru en því að reykur og sót getur þá hugsanlgea borist inn í mjög viðkvæmt holrúm. Ekki sérlega hræsilegt það.Í fjórða lagi þá er það hreinn uppspuni að eyrnakerti hafi verið notuð um aldir af Hopi indjánum. Auglýsingar Biosun og Heilsuhvols eru gjarnan skreyttar með indjánamálverki sem á að sýna slík kerti í hendi eins þeirra og því haldið fram að þetta sé aldagömul iðja hjá þessum indjánum. Það sem hann heldur á á myndinni eru fjaðrir. Talsmaður Hopi indjánaættbálksins hefur skriflega borið þessa vitleysu til baka í bréfi sem finna má hér.“Björn Geir segir að notkun kertanna geti beinlínis verið skaðleg: „Bráðið vax drýpur niður í kertið innanvert eins og áður er lýst og tilfelli hafa komið upp þar sem fólk hefur brennst illa inni í ytra eyranu, fyllt það af storknu vaxi og jafnvel brennt gat á hljóðhimnuna.“ Hann bendir á erlendar greinar um það hvernig eyrnakertin geti valdið skaða. Önnur greinin birtist í tímariti lækna í háls-, nef og eyrnalækningum. Í niðurstöðum tilraunar sem þar er vísað til kom í ljós að hol kerti sugu engan merg úr eyrum þátttakenda í rannsókninni og í einum sjötta tilfella sköðuðu kertin þá sem prófuðu þau. Læknirinn bendir einnig á að kanadísk yfirvöld vara við notkun eyrnakerta. Hér að neðan má sjá eitt þeirra myndbanda sem Björn Geir bendir lesendum sínum á. Í því eru eyrnakerti prófuð án þess að setja þau upp við eyra og þar kemur í ljós að efni sem líkist eyrnamerg myndast inni í kertinu á meðan það brennur. Í annari tilraun sést að kertið, sem notað er í myndbandinu, sogar ekkert upp, en auglýsendur halda því fram að kertin geti sogið upp merg, eins og Björn Geir bendir á.
Mest lesið Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Björgvin Halldórsson látinn Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Fleiri fréttir Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Sjá meira