Íhuga stofnun viðbragðssveitar gegn Rússum Samúel Karl Ólason skrifar 1. september 2014 15:01 Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO. Vísir/AFP
Leiðtogar NATO munu seinna í vikunni taka ákvörðun um hvort stofna eigi sérstaka viðbragðssveit og safna herbirgðum í austanverðri Evrópu. Markmiðið væri að verja meðlimi NATO gegn Rússum. Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, tilkynnti þetta í dag. „Áætlunin mun tryggja að við höfum mannaflann og búnaðinn á réttum stað á réttum tíma,“ hefur AP fréttaveitan eftir Rasmussen. „Ekki vegna þess að við viljum ráðast á einhvern. Heldur vegna þess að hætturnar og ógnirnar eru til staðar og sýnilegar.“ Leiðtogar NATO ríkja munu koma saman í Wales á fimmtudaginn. Talið er að nær eingöngu muni fundurinn vera um hvernig bandalagið á að bregðast við aðgerðum Rússlands í Úkraínu og hvaða áhrif þær hafa á Evrópu. Samkvæmt Rasmussen myndir viðbragðssveitin mögulega innihalda nokkur þúsund hermenn. Þeir kæmu þá frá þeim 28 ríkjum sem eru í NATO. Sveitinni gæti verið beitt með stuttum fyrirvara til að verja meðlimi NATO gegn öllum ógnum. „Þar á meðal Rússlandi,“ sagði Rasmussen. AP segir að frá því að Rússland innlimaði Krímskagann hafi Pólland og aðrir meðlimir NATO í austri farið fram á að bandalagið tæki stærri þátt í vörn þeirra. Aðrir meðlimir NATO hafa þó ekki vilja taka ákvarðanir sem ógni samkomulagi Rússlands og NATO frá 1997 um að bandalagið myndi ekki staðsetja hermenn í austur Evrópu til langs tíma.Hér má sjá gífurlega aukningu Rússa til hernaðarmála síðan Vladimir Pútín tók við völdum árið árið 2000. Útskýringin er þó á ensku.Vísir/Graphic News
Mest lesið Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Fleiri fréttir „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Sjá meira