Eldur við Grettisgötu: „Maður beið bara eftir þessu“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 18. ágúst 2014 10:08 Kristján rekur verslun við Grettisgötu. Þarna í bakgrunni má sjá húsið sem brann. Vísir/GVA „
Maður beið bara eftir þessu. Víkingasveitin og lögreglan hafa reglulega þurft að koma hingað og hafa afskipti af fólki í þessu húsi,“ segir Kristján B. Jónasson rekur bókaforlag við Barónstíg, ská á móti húsinu sem kviknaði í á tíunda tímanum í morgun. „Við sem eigum eignir og rekum fyrirtæki í nágrenni við húsið tölum mikið saman og það hefur verið mikil óánægja yfir því hvað fer fram í þessu húsi. Það hefur verið mikið vesen þarna,“ segir hann. Kristján hefur leigt skrifstofuhúsnæði við Barónstíg frá því árið 2009. „Slökkviliðið kom eins og skot, alveg rosalega góð viðbrögð hjá því. Eldtungurnar náðu aðeins út þegar ein rúðan brotnaði. En slökkviliðsmennirnir náðu að slökkva þetta eiginlega um leið. Húsið virðist samt vera mjög illa farið eftir eldinn,“ segir Kristján.Búið er að slökkva eldinn og vinnur slökkviliðið nú að því að reykræsta húsið. Nágrannar segja í samtali við Vísi að hústökufólk hafi dvalið í húsinu. Þar hafi verið mikið partýhald á kvöldin og stöðugt ónæði. Hafði hann á orði að tímaspursmál væri þangað til eitthvað færi úrskeiðis.Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu voru þrír í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Vöknuðu þeir við eldinn, komust út og varð ekki meint af. Eldsupptök eru ókunn. Nágranni segir í samtali við Vísi að einn íbúa hússins hafi stokkið út um glugga af annarri hæð eftir að kviknaði í.
Tengdar fréttir Eldur í húsi við Grettisgötu Allt tiltækt slökkvilið var kallað út eftir að eldur kom upp ofarlega á Grettisgötu. 18. ágúst 2014 09:32 Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Sjá meira
Eldur í húsi við Grettisgötu Allt tiltækt slökkvilið var kallað út eftir að eldur kom upp ofarlega á Grettisgötu. 18. ágúst 2014 09:32