Aftur villandi merkingar á kjöti í Krónunni ingvar haraldsson skrifar 19. ágúst 2014 07:00 Líkt og sjá má á kjötpakkningunni frá Krónunni er kjötið merkt bæði íslenskt og upprunið á Spáni. vísir/valli
Á föstudaginn tók athugull neytandi eftir því að svínakjötsspjót í Krónunni á Selfossi væru bæði merkt „íslenskt“ með íslenska þjóðfánanum og „upprunaland Spánn“. Neytandinn tók myndinna sem sjá má hér að ofan.Önnur mynd af grísakjöti úr krónunni sem bæði var merkt íslenskt og upprunnið á Spáni birtist fyrir ríflega viku á Vísi. Þá lofaði Kristinn Skúlason rekstrarstjóri Krónunnar, bót og betrun og sagði fyrir mistök íslenskt grísakjöt hafa verið merkt sem spænskt. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna sendi Krónunni bréf vegna merkinga Krónunnar um helgina þar sem hann spurði hvers vegna merkingar væru svo misvísiandi:„Enn á ný kemur nú upp mál um villandi merkingar hjá Krónunni varðandi upprunaland á kjöti. Um er að ræða grísahnakka (spjót). Fram kemur í smáu letri að upprunaland sé Spánn en síðan er áberandi miði á umbúðum þar sem fram kemur íslenskt og er þessi merking með íslensku fánaröndinni . Nú hlýt ég að spyrja; hverju sætir þetta, eru þetta enn ein mistök hjá starfsmanni?“Segist harmar atvikið Harpa Grétarsdóttir, markaðsfulltrúi Kaupáss sem á Krónuna, svaraði Jóhannesi í dag þar sem hún sagðist harma atvikið. Í samtali við Vísi sagði Harpa starfsmaðurinn sem merkti vöruna hafa talið sig fara rétt að. „Grísahnakkinn sem um ræðir er alla jafna gerður úr spænsku grísakjöti. Í þessu tilviki var ekki til spænskur grísahnakki og tók starfsmaður því ákvörðun um að nota íslenskan grísahnakka til að hægt væri að bjóða upp á vöruna. Kerfið sem býr til miðann er miðlægt og starfsmenn geta eðlilega ekki breytt innihaldslýsingu því aðeins innkaupastjórinn hefur heimild til þess. Starfsmaðurinn taldi sig hafa tekið rétta ákvörðun með því að koma því á framfæri að kjötið væri íslenskt“ sagði Harpa og ítrekaði að hún bæðist innilegrar velvirðingar á misskilningnum sem málið olli.
Tengdar fréttir „Grísakjöt íslenskt - upprunaland Spánn“ Framleiðendur segja að um mistök hafi verið að ræða í merkingu á kjötvörum þar sem ekki var ljóst hvort kjöt væri íslenskt eða spænskt. Formaður Neytendasamtakanna segir mikilvægt að fylgjast gaumgæfilega með merkingum. 7. ágúst 2014 12:38 Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira
„Grísakjöt íslenskt - upprunaland Spánn“ Framleiðendur segja að um mistök hafi verið að ræða í merkingu á kjötvörum þar sem ekki var ljóst hvort kjöt væri íslenskt eða spænskt. Formaður Neytendasamtakanna segir mikilvægt að fylgjast gaumgæfilega með merkingum. 7. ágúst 2014 12:38