Ribbaldar í Vestmannaeyjum rændu mann í beinni Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 3. ágúst 2014 20:49
Stór hópur ungra drengja beindi skotfærum að saklausum vegfaranda á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og krafði hann um peninga ella hlyti hann verra af. Atvikið átti sér stað á sama tíma og Hjörtur Hjartarson, fréttamaður Stöðvar 2, flutti fregnir í beinni af því að allt hefði gengið stórslysalaust fyrir sig í Eyjum. Lögreglan í Vestmannaeyjum hló þegar fréttastofa náði af henni tali til þess að spyrja út í málið. Það ætti kannski engan að undra þar sem skotfærin eru úr plasti og því var atvikið einungis til gamans gert. „Nei, okkur hafa ekki borist neinar tilkynningar vegna þessa.“ Lögregla segir þetta algengan leik ungra krakka í Vestmannaeyjum yfir verslunarmannahelgina. „Þetta er líka hátíð fyrir þau.“ Vegfarendur taka vel í leik barnanna enda er góð stemning í Vestmannaeyjum. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðhátíðarnefnd stefnir í stærstu Þjóðhátíð frá upphafi. Lögregla er með vel mannað lið og verður ströng gæsla eftir sem áður. Minniháttar mál hafa komið upp hjá lögreglu. Hið kómíska rán má sjá í myndbandinu sem fylgir með fréttinni.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira