Ekki óvanalegt að selja tveggja ára gamalt lambakjöt Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. júlí 2014 18:22 MYND/AÐSEND
Íslenskum kjötunnanda brá í brú þegar hann rakst á pakka af lambafille með fiturönd í verslun Bónus á höfuðborgarsvæðinu í dag. Kjötið, sem er frá kjötafurðarstöð Kaupfélags Skagfirðinga, er af lambi slátruðu á haustmánuðum ársins 2012 og er því næstum tveggja ára gamalt. Neytandinn hafði samband við Vísi og vildi grennslast fyrir um hvort eðlilegt væri að selja jafn gamla kjötafurð og þessa í verslunum landsins. „Matreiðslumeistarinn sem ég sýndi þetta sagðist ekki hafa trúað sínum augum og sagðist aldrei vilja sörvera þetta,“ bætti forvitni neytandinn við.Leifur Eiríksson, gæðastjóri kjötafurðarstöðvar Kaupfélags Skagfirðinga, segir að ekki sé óvanalegt að selja jafn gamalt kjöt og þetta en þó einungis ef vel er hlúð að geymsluskilyrðum þess. „Lambafilleinu okkar er rækilega vakúmpakkað og geymt í um 24 til 25 gráðu frosti. Filman okkar er þykk og mikil þannig að enginn ætti að þurfa að kvarta undan gæðum vörunnar. Við skulum bara orða það þannig að ef við treystum þessu ekki þá værum við ekki að selja þetta,“ segir Leifur og bætti við að þeir hjá Kaupfélaginu væru þó ekki hrifnir af því að vera með jafn gamla vöru í dreifingu. Ástæðan fyrir því væri þó einfaldlega offramboð á þessari tilteknu vöru. Neyslumynstur Íslendinga hafi breyst mikið á undanförnum árum og fjölgun ferðamanna, sem þekkja betur til svína- og nautakjöts, hafi einnig sett strik í reikninginn. „Það óskar sér ekkert fyrirtæki að vera með fullan lager af vöru sem selst ekki. Það fylgir því bara kostnaður sem ratar út í verðið á öðrum afurðum,“ segir Leifur. Aðspurður um það hvað ráði því að ekkert seljist af einni kjötafurð en að sérstaklega þurfi að flytja inn birgðir af öðrum, til að mynda nautakjöti frá Danmörku, segir Leifur það fyrst og fremst tilkomið vegna fyrrgreindra aðstæðna, sem og framleiðslutíma kjötafurða. Erfitt sé að bregðast við sveiflum í eftirspurn á nautakjöti enda taki um 30 mánuði að koma því í verslanir. Ekki bætir aukin mjólkurneysla Íslendinga í tengslum við vinsæla megrunarkúra á borð við LKL úr skák – færri nautgripir fari fyrir vikið til slátrunar.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira