Lífið

Cheryl Cole breytir nafninu

Poppdívan Cheryl Cole hefur tekið upp eftirnafn nýja eiginmannsins, Jean-Bernard Fernandez-Versini.

Hún mun því ekki lengur bera eftirnafn fyrrum eiginmanns hennar, knattspyrnukappans Ashley Cole, en verður þess í stað þekkt sem Cheryl Fernandez-Versini.

Cheryl tilkynnti heimsbyggðinni á sunnudag að þau Jean-Bernard hefðu gengið í það heilaga en þau hafa einungis verið saman í um þrjá mánuði.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.