Klambratún illa farið eftir sýningar Sirkuss Íslands Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. júlí 2014 12:08 VÍSIR/JÓN HÁKON
Mikil ólga er meðal hundaeigenda í Hlíðahverfinu í Reykjavík vegna þess hvernig komið er fyrir grasbala einum þar sem áður stóð sirkustjald á vegum Sirkus Íslands. Hin svokallaða skeifa á Klambratúni er illa farin eftir sýningar sirkussins á túninu. Þar sem tjaldið stóð er nú eitt moldarsvað og stærðarinnar hjólför liggja til og frá svæðinu en sirkusinn er á faraldsfæti um landið í sumar. Tjaldið er spánýtt og fara nú fram sýningar í því á Ísafirði. Því næst mun sirkusinn halda til Akureyrar, Selfoss og Reykjanesbæjar. Vísir tók hundaeiganda tali sem sagði aðkomuna ekki góða. Svæðið er mikið notað af hundaeigendum og meðlimir Hundavinafélagsins á Klambratúni (HFK) hittast þar meðal annars um helgar. Þrátt fyrir að bannað sé að vera með hundana lausa hafa eigendur þeirra leyft þeim að hlaupa um á svæðinu sem afmarkast af trjám allan hringinn. Auðvelt er að fylgjast með hundunum í rjóðrinu og því kjöraðstæður fyrir lausagöngu. „Það er gífurlega ljótt hvernig komið er fyrir þessu svæði og ljóst er að það mun kosta töluverða fjármuni að tyrfa yfir það aftur,“ segir einn meðlimur HFK í samtali við Vísi. Hundaeigendur hafa þegar kvartað yfir drullunni til borgaryfirvalda. Hundavinafélagið á Klambratúni hefur lengi barist fyrir svokölluðu hundagerði á þessu svæði en hverfisráð Hlíða hafnaði beiðni þeirra fyrir um tveimur árum síðan. Hér sést betur hvernig farið er fyrir svæðinu.VÍSIR/JÓN HÁKON
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Fleiri fréttir Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Sjá meira