Innlent

Farvegi árinnar breytt og gljúfrið lýst upp

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Frá aðgerðunum.
Frá aðgerðunum. mynd/guðbrandur örn
Hátt í sjötíu manns eru nú við leit í Bleiksárgljúfri og unnið er að því að breyta farvegi árinnar svo betur megi leita í gilbotninum. Rörum og dælum verður komið upp til að færa rennsli og verður gljúfrið lýst upp. Guðbrandur Örn Arnarson, stjórnandi aðgerðarinnar, segir aðstæður gríðarlega erfiðar.

„Aðstæður eru líka hættulegar, vatnið fellur úr um 30 metra hæð og súrefni í vatninu mikið. Þegar það fellur þá er nær ekkert skyggni,“ segir Guðbrandur.

„Þetta eru 1000 sekúndulítrar af vatni sem þarf að færa til og mikil því mikil framkvæmd framundan.“

Leit hófst rétt fyrir klukkan tíu í morgun og flestir þeirra sem eru við leitina í dag eru af suðvesturhorninu. „Hér er fólk sem er að leysa heimamenn af. Heimamennirnir eru búnir að standa í ströngu, búnir að vera hér samfleytt í þrettán daga og það þurfti að leyfa þeim að vera með fjölskyldum sínum og gefa þeim tækifæri til að hvíla sig.“ 

Ástu Stefánsdóttur hefur verið saknað síðan á hvítasunnudag og hefur umfangsmikil leit staðið yfir síðan þá. Kærasta hennar, Pino Becerra, fannst látin á botni Bleiksárgljúfurs þriðjudaginn 10. júní. Talið er nær útilokað að Ásta finnist á lífi úr þessu.

mynd/guðbrandur örn
mynd/guðbrandur örn
mynd/guðbrandur örn

Tengdar fréttir

Leitað í hyljum og vötnum í dag

Fjöldi björgunarsveitarmanna leitaði fram á nótt að konunni, sem saknað er í Fljótshlíðinni, en án árangurs.

Leita á víðara svæði

„Það hefur verið leitað nánast samfleitt. Sumir leitarhópar hvíldu sig einungis í um tvo tíma,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli.

Leitin enn engan árangur borið

Leitað var til klukkan þrjú í nótt og voru fyrstu hópar aftur byrjaðir að leita klukkan átta í morgun.

Hefja leit í Bleiksárgljúfri á ný

"Við teljum okkur samt sem áður hafa leitað ansi vel. En þetta gljúfur er mjög flókið og ekkert lamb að leika sér við.“

Leit í Bleiksárgljúfri í gær skilaði engum árangri

Leitarhópar fóru í gærkvöld um svæðið í kringum Bleiksárgljúfur til leitar að Ástu Stefánsdóttur sem ekkert hefur spurst til síðan um Hvítasunnuna. Leitin skilaði engum árangri og segir Sveinn Rúnarsson lögreglustjóri á Hvolsvelli að deginum í dag verði varið í undirbúning en um helgina stendur til að fara í gljúfrið með öflugri tól og tæki.

Stífluðu fossinn í leit að konunni

Hluti fossins í Bleiksárgljúfri var í kvöld stíflaður og seig þar kafari niður í þeirri von um að finna konuna sem leitað hefur verið síðan á sunnudag. Aðgerðin tók tæpa fimm klukkutíma en fannst konan ekki þar.

Leitað í Bleiksárgljúfri í dag

Reynt verður að minnka vatnsmagn fossins í Bleiksárgljúfri og verður hluti fossins stíflaður. Þá verður gljúfrið lýst upp og munu leitarmenn síga niður með gilbörmunum.

Bræður Pino komnir til Íslands

Pino Becerra Bolanos, sem lést í Bleiksárgljúfri, verður brennd hér á landi og askan flutt til Spánar í lok vikunnar.

Fótsporin ekki eftir Ástu

Rannsóknarlögreglumenn og fótsporasérfræðingar komust að því að spor eftir beran fót sem fundust í Fljótshlíð hafi ekki verið eftir íslensku konuna sem hvarf.

Leggja megin áherslu á sporin

"Megin áhersla leitarinnar í dag eru að elta þau spor sem fundust,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×