Grjótkrabbinn kominn alla leið til Skagafjarðar Jakob Bjarnar skrifar 27. júní 2014 12:30 Krabbinn er á hraðri siglingu með Íslandsströndum. Hann ber mikið af hrognum. Þau skipta tugum eða hundruðum þúsunda. HALLDÓR P. HALLDÓRSSON
Krakkar á leikjanámskeiði á Ísafirði lögðu út krabbagildrur og fengu í þær grjótkrabba. Frá þessu segir í Bæjarins besta og sérfræðingunum á Hafró þykja þetta athyglisverð tíðindi. Jónas Jónasson er með grjótkrabbann á sínum borðum hjá Hafrannsóknarstofnun. „Hann hefur verið að breiðast út tiltölulega hratt með strandstraumi vestur og svo norður með landinu,“ segir Jónas. „Þetta er merkilegt með krakkana þarna fyrir vestan, en við höfum reyndar fengið fregnir af grjótkrabba í Djúpinu áður. En, þess verður að geta að bara í þessari viku fengum við myndir úr Skagafirði. Það er það allra allra nyrsta sem við höfum fengið. Þar fékkst hann í silunganet innarlega í Skagafirði. Hann er kominn á norðurlandið líka og það eru allra nýjustu fréttir,“ segir Jónas. Grjótkrabbi fannst fyrst hér við land árið 2006, er ættaður frá Nýfundnalandi. Krabbinn er fremur stór, skjöldurinn getur orðið allt að 15 sentímetra breiður. Hann hefur verið að nema land við Íslandsstrendur á allra síðustu árum, og fer nokkuð hratt um. „Já, það eru fá stór krabbadýr sem lifa svona grunnt eins og hann. Það er pláss fyrir hann í vistkerfinu,“ segir Jónas.Fullvaxinn grjótkrabbi en skelin getur orðið allt að 15 sentímetra breið.Óskar S. GíslasonMenn hafa áhyggjur af því að grjótkrabbinn geti reynst skaðvaldur, þá hvað varðar botndýralíf. Jónas segir það alveg rétt, grjótkrabbinn getur orðið atkvæðamikill afræningi í botndýrakerfinu. Og kemur væntanlega til með að hafa einhverjar neikvæðar afleiðingar. „En, þess ber að geta líka að hann hefur verið nokkuð vinsæll á borðum landsmanna, svona þar sem hefur verið reynt,“ segir Jónas. Að sögn Jónasar eru að minnsta kosti tvö sjávarútvegsfyrirtæki sem eru farin að veiða grjótkrabba og jafnvel reynt útflutning á afurðinni þó í smáum mæli sé. Krabbinn er sætur og bragðið og víða mjög eftirsóttur.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira