Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Malta 5-0 | Létt í Dalnum Guðmundur Marinó Ingvarsson á Laugardalsvelli skrifar 19. júní 2014 17:07 Steplpurnar fagna marki í kvöld. vísir/daníel
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fór létt með Möltu 5-0 á Laugardalsvelli í undankeppni heimsmeistarakeppninnar sem fram fer í Kanada næsta sumar. Ísland var 3-0 yfir í hálfleik. Leikurinn var aldrei spennandi. Ísland var mikið sterkari aðilinn frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og hefði liðið í raun getað skorað mun fleiri mörk. Framherji Möltu fékk ekkert að gera fram á við í leiknum því liðið kom boltanum varla inn á vallarhelming Íslands, slíkir voru yfirburðirnir. Það tók Ísland tólf mínútur að komast yfir og hafði liðið fengið fín færi til að skora áður en Hólmfríður Magnúsdóttir gerði það eftir hornspyrnu Hallberu Guðnýjar Gísladóttur sem átti ófáar góðar sendingarnar inn í teig Möltu í leiknum. Átta mínútum síðar skoraði Elín Metta Jensen annað mark Ísland og fimm mínútum fyrir hálfleik bætti Dóra María Lárusdóttir þriðja markinu við en Ísland átti 20 skot í fyrri hálfleik. Þóra Björg Helgadóttir fékk einu sinni að snerta boltann í leiknum og aldrei með höndunum. Íslensku stelpurnar voru alls ekki saddar þrátt fyrir að úrslitin voru ráðin í hálfleik. Liðið sótti af krafti þar sem bakverðirnir, Hallbera og Elísa Viðarsdóttir studdu vel við sóknina.Dagný Brynjarsdóttir fékk fjölda færa í fyrri hálfleik og hefði hæglega getað skorað þrennu í hálfleiknum. Hún náði þó að reima á sig markaskóna í hálfleik og skoraði fjórða mark Íslands á 64. mínútu eftir þunga sókn Íslands. Ísland átti yfir 40 skot í leiknum og hefði átt að skora mun fleiri mörk. Fimmta markið kom þegar fimm mínútur voru eftir. Elín Metta tvöfaldaði þá markafjölda sinn fyrir Ísland þegar hún skoraði annað mark sitt í leiknum en hún skoraði fyrstu landsliðsmörk sín í kvöld. Ísland á þrjá leiki eftir í riðlinum, alla á heimvelli. Liðið er í öðru sæti með 13 stig, stigi á undan Danmörku sem liðið mætir í næsta leik í ágúst. Freyr: Skrýtnasti fótboltaleikur sem ég hef spilað„Þetta var býsna auðvelt. Ég viðurkenni það. Þetta var oft á tíðum hálfgerður skrípaleikur,“ sagði Freyr Alexandersson þjálfari Íslands eftir sigurinn í kvöld. „Maður er svekktur með nýtinguna. Við eigum að skora yfir fimm mörk en við vorum að reyna og boltinn gekk ágætlega á milli leikmanna. Það vantaði aðeins geðveiki og gæði inn í teiginn. Yfir 40 marktilraunir er ótrúleg tala. „Við skjótum í markmanninn af fimm metra færi tíu sinnum í leiknum. Þar hefði ég viljað sjá meiri gæði. „Við vorum með ellefu sóknarmenn í leiknum. Við spilum í þremur línum en varnarhlutverk okkar í leiknum var ekki neitt. Við sóttum allan leikinn og þetta er skrýtnasti fótboltaleikur sem ég hef spilað,“ sagði Freyr sem eygir enn möguleika á að vera með nógu góðan árangur í öðru sæti riðilsins til að komast í umspil um laust sæti á HM en þau fjögur lið með bestan árangur í öðru sæti eiga möguleika á sæti á HM í Kanada. „Stigin, að halda hreinu, skora fimm og fá engin spjöld er mjög mikilvægt. Það eru möguleikar. Það er meiri séns heldur en við gerum okkur grein fyrir ef þetta spilast þokkalega fyrir okkur sem getur alveg gerst. „Við verðum að vera með okkar á hreinu og taka restina af stigunum,“ sagði Freyr. Dagný: 5-0, það verður að hafa það„Ég hefði átt að vera með fimm, á fínum degi fyrir mig. Ég hefði átt að vera með þrennu í fyrri hálfleik miðað við færin sem ég fékk,“ sagði Dagný Brynjarsdóttir eftir leikinn en hún skoraði eitt mark í leiknum. „Við liggjum í sókn og skorum fimm og hefðum kannski átt að vinna þær 12-0, kannski meira. „Við nýttum færin ekki almennilega og oft klikkaði síðasta sendingin. Fyrirgjafirnar voru oft ekki nógu góðar en 5-0, það verður að hafa það. „Aðstæður voru betri heldur en úti á Möltu þar sem við vorum á gervigrasi og völlurinn var þrengri sem hentaði þeim betur,“ sagði Dagný sem vildi ekki meina að þungur og blautur völlurinn hafi gert Íslandi erfitt fyrir í vítateig Möltu. „Markmiðið okkar var að halda einbeitingu og vera hreyfanlegar og láta boltann ganga. Það þýðir ekkert að reyna að sóla ein í gegnum þrjár því þær eru svo þéttar. „Við þurfum að vera þolinmóðar því þær nýta öll tækifæri til að tefja. Stundum voru þær með allt liðið inni í teig og þær voru duglegar að henda sér fyrir boltann. „Við hefðum þurft að vera grimmari í öðrum bolta, þegar markmaðurinn varði,“ sagði Dagný. Elín Metta: Ánægð að ná að skora„Ég er mjög ánægð með að hafa náð að skora í kvöld. Það gefur mér sjálfstraust,“ sagði Elín Metta Jensen skoraði skoraði tvö fyrstu mörk sín fyrir Ísland í kvöld. „Mér fannst við reyna að spila fótbolta og þær voru í einhverju allt öðru. Þetta var spes leikur en ef við hefðum sett aðeins meiri gæði í spilið okkar þá hefðum við náð að skora fleiri mörk. „Þær hentu sér fyrir boltann í teignum og voru margar þar. Maður þurfti að finna glufurnar og við náðum því nokkrum sinnum en hefðum þurft að nýta færin aðeins betur. „Í svona leikjum þarf maður að passa sig að detta ekki niður á sama plan og hitt liðið. Við lækkuðum tempóið í okkar leik miðað við hvernig við spilum venjulega. Það er aðalega það sem hefði getað verið betra,“ sagði Elín Metta.
Fótbolti Mest lesið Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Fær að dansa á leikunum í búningi „minions“ úr Aulin ég-myndunum Sport Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Enski boltinn Extraleikarnir: Bannað að bíta og nýtt met í gryfjuhlaupi Sport Sló í gegn með dramatískri afsökunarbeiðni Sport Dagskráin: Leikið um sæti á Wembley og biðin eftir Super Bowl stytt Sport „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Enski boltinn Andri aftur með og loksins vannst sigur Enski boltinn Fleiri fréttir Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Kralj fer til Keflavíkur Sandra fór illa með færin í tapi gegn úlfynjunum Mateta fer ekki til Mílanó Valgeiri létt eftir langa martröð Ísak Andri til Danmerkur rétt fyrir lok gluggans Ronaldo í fýlu og skrópar í leik kvöldsins Jón Dagur bætist í Íslendingalið Freys Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Kolbeinn lánaður til Noregs „Ég er ekki Gandálfur hinn grái“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Sjá meira
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti