Tilkynntu landsmönnum um óléttuna fyrir slysni Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. júní 2014 14:57 Þessi mynd birtist landsmönnum í gærkvöldi. Visir/skjáskot úr fréttum RÚV
Mörgum sjónvarsáhorfendum hefur eflaust brugðið í brún þegar stærðarinnar mynd af hamingjusömu pari fyllti skjái allra landsmanna undir lok kvöldfrétta Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Voru þar á ferðinni Sylvía Dagmar Briem og unnusti hennar Emil Þór Jóhannsson sem tilkynntu með heldur óhefðbundnum hætti að lítill „bumbubúi væri í ofninum“, það er að þau ættu von á barni en Sylvía er komin þrjá mánuði á leið. Í samtali við Vísi sagðist Sylvía Dagmar vera stálslegin, þrátt fyrir áfallið sem fylgdi óvæntu myndbirtingu í gærkvöldi. „Við erum fyrst og fremst ennþá í hláturskasti. Þetta átti alls ekki atvikast svona,“ sagði hún en Sylvía starfar á RÚV. Hún hafði ákveðið að fá Boga Ágústsson með sér í lið til að krydda aðeins upp á óléttutilkynningunna. „Upphaflega ætluðum við að fá Boga til að flytja frétt af „lengsta barni í heimi“ en okkur þótti það of steikt svo við ákváðum heldur að taka mynd af honum í settinu með fyrrnefnda mynd í bakgrunninum,“ segir Sylvía.Mynd/Sylvía DagmarStaðið hafði til að taka ljósmyndina eftir að útsendingu lyki og til að spara tíma hafði einn af tæknimönnum kvöldfréttanna laumað ljósmyndinni af parinu inn í útsendingarkerfi sjónvarpsins með þeim afleiðingum að myndin slysaðist inn í þráðbeina útsendinguna. Viðbrögðin við tilkynningunni hafa ekki látið á sér standa. Síminn hefur ekki stoppað hjá skötuhjúunum og þau hafa fengið heillaóskir á öllum heimsins miðlum. „Ég er meira að segja búin að fá tölvupósta frá fólki sem ég þekki ekki neitt og séð Facebook-innlegg sem hefjast flest á orðunum „Til hamingju þetta par, þó ég viti ekkert hver þið eruð,“ segir Sylvía og hlær. Vísir óskar parinu til hamingju með og hlakkar til að heyra viðbrögð bumbubúans þegar honum verður sagt frá því hvernig koma hans varð óvart að mögulega stærstu óléttutilkynningu í Íslandssögunni.
Mest lesið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Tíska og hönnun Fleiri fréttir Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Sjá meira