Lífið

Tilkynntu landsmönnum um óléttuna fyrir slysni

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þessi mynd birtist landsmönnum í gærkvöldi.
Þessi mynd birtist landsmönnum í gærkvöldi. Visir/skjáskot úr fréttum RÚV
Mörgum sjónvarsáhorfendum hefur eflaust brugðið í brún þegar stærðarinnar mynd af hamingjusömu pari fyllti skjái allra landsmanna undir lok kvöldfrétta Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi.

Voru þar á ferðinni Sylvía Dagmar Briem og unnusti hennar Emil Þór Jóhannsson sem tilkynntu með heldur óhefðbundnum hætti að lítill „bumbubúi væri í ofninum“, það er að þau ættu von á barni en Sylvía er komin þrjá mánuði á leið.

Í samtali við Vísi sagðist Sylvía Dagmar vera stálslegin, þrátt fyrir áfallið sem fylgdi óvæntu myndbirtingu í gærkvöldi. „Við erum fyrst og fremst ennþá í hláturskasti. Þetta átti alls ekki atvikast svona,“ sagði hún en Sylvía starfar á RÚV.

Hún hafði ákveðið að fá Boga Ágústsson með sér í lið til að krydda aðeins upp á óléttutilkynningunna. „Upphaflega ætluðum við að fá Boga til að flytja frétt af „lengsta barni í heimi“ en okkur þótti það of steikt svo við ákváðum heldur að taka mynd af honum í settinu með fyrrnefnda mynd í bakgrunninum,“ segir Sylvía.

Mynd/Sylvía Dagmar
Staðið hafði til að taka ljósmyndina eftir að útsendingu lyki og til að spara tíma hafði einn af tæknimönnum kvöldfréttanna laumað ljósmyndinni af parinu inn í útsendingarkerfi sjónvarpsins með þeim afleiðingum að myndin slysaðist inn í þráðbeina útsendinguna.

Viðbrögðin við tilkynningunni hafa ekki látið á sér standa. Síminn hefur ekki stoppað hjá skötuhjúunum og þau hafa fengið heillaóskir á öllum heimsins miðlum. „Ég er meira að segja búin að fá tölvupósta frá fólki sem ég þekki ekki neitt og séð Facebook-innlegg sem hefjast flest á orðunum „Til hamingju þetta par, þó ég viti ekkert hver þið eruð,“ segir Sylvía og hlær.

Vísir óskar parinu til hamingju með og hlakkar til að heyra viðbrögð bumbubúans þegar honum verður sagt frá því hvernig koma hans varð óvart að mögulega stærstu óléttutilkynningu í Íslandssögunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.