Fótbolti

Umræðan einkennist af kynþáttahatri

Sepp Blatter.
Sepp Blatter.
Það er hart sótt að alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA, vegna HM 2022 í Katar en almennt er talið að Katarar hafi fengið mótið eftir að hafa mútað nefndarmönnum hjá FIFA.

FIFA hefur sjálft hrundið af stað rannsókn vegna málsins en forseti FIFA, Sepp Blatter, er alls ekki ánægður með umræðuna í kringum þetta mál.

"Þetta er eins og að lenda í miðjum stormi. Því miður einkennist umræðan af mismunum og kynþáttahatri," sagði Blatter heitur.

Umsóknirnar fyrir HM 2018 og 2022 eru báðar í rannsókn hjá FIFa og er von á niðurstöðum úr þeim rannsóknum í september eða október.

Blatter segir að málinu verði endanlega lokið þegar niðurstöður þessarar rannsóknar liggja fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×