Barnaverndarnefnd á ekki rétt á upplýsingum úr vanskilaskrá Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 3. janúar 2014 13:10
Barnavernd Reykjavíkur má ekki fletta upp upplýsingum um fjárhagsmálefni og lánstrausts tiltekins einstaklings í skrá Creditinfo Lánstrausts hf. í tilefni af rekstri barnaverndarmáls fyrir dómi. Þetta er niðurstaða Persónuverndar samkvæmt ákvörðun 2. janúar 2014. Creditinfo sendi Persónuvernd bréf í maí á síðasta ári og óskaði eftir áliti nefndarinnar á því hvort barnaverndarnefnd Reykjavíkur hefði heimild til að fletta einstaklingi upp í vanskilaskrá vegna máls sem væri rekið fyrir dómstólum um forsjársviptingu. Barnaverndarnefnd skal senda Persónuvernd staðfestingu á því eigi síðar en 9. janúar um eyðingu upplýsinga um þennan tiltekna einstakling hjá barnaverndarnefnd og skriflega lýsingu á því hvernig tryggt verði að uppflettingar í skránni af hálfu hennar muni framvegis samrýmast lögum.Töldu rúma heimild vera í barnaverndarlögum Í júlí var barnaverndarnefnd Reykjavíkur tilkynnt um málið. Í kjölfarið fóru nokkur bréf á milli Persónuverndar og barnaverndar Reykjavíkur. Persónuvernd óskaði meðal annars eftir upplýsingum, frá barnaverndarnefnd, um það á hvaða heimild í lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, slík uppfletting hjá Creditinfo byggi. Persónuvernd óskaði jafnframt eftir upplýsingum um hver tilgangur uppflettingarinnar hefði verið og hvernig sá tilgangur samræmdist hlutverki vanskilaskrár og upplýsingum um það hvernig nefndin hefði gætt að ákvæðum laganna þegar viðkomandi einstaklingi var flett upp í skránni. Barnavernd vísaði til þess að í barnaverndarlögum væri ákvæði sem hefði að geyma mjög rúma heimild til þess að óska eftir upplýsingum sem máli geta skipt við meðferð barnaverndarmála. Þær upplýsingar sem barnavernd óskaði eftir frá Creditinfo hafi verið nauðsynlegar vegna meðferðar málsins. Persónuvernd ítrekaði þá spurningu sína um það á hvaða lagaheimild uppflettingin grundvallaðist og hver hefði verið tilgangur hennar og hvernig sá tilgangur samræmdist hlutverki vanskilaskrár. Einnig óskaði Persónuvernd eftir skýringum á því af hverju nöfn og kennitölur barnanna í þessu tiltekna máli hefðu komið fram í svarbréfi barnaverndar til Persónuverndar og hvort sú framkvæmd væri almennt viðhöfð. Barnaverndarnefnd svaraði að við nánari skoðun væri þeim ekki heimilt samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar við Creditinfo að óska eftir þessum upplýsingum. Nefndin hefði þó talið vinnsluna málefnalega og tilgang hennar skýran. En tilgangurinn hefði verið að hrekja staðhæfingar sem fram komu í gögnum dómsmáls um fjárhagsstöðu aðila málsins.Barnaverndarnefnd birtir almennt ekki nöfn barna Um birtingu nafna og kennitalna þeirra barna sem mál nefndarinnar laut upphaflega að segir í bréfi hennar að í ljósi þeirrar ríku þagnarskyldu sem hvíli á öllum þeim sem vinni að barnavernd. Nefndin birti almennt ekki nöfn og kennitölur barna í bréfum sínum og að sú grundvallarregla væri virt í hvívetna. Þrátt fyrir ríka þagnaskyldu hafi verið talið nauðsynlegt að veita Persónuvernd upplýsingarnar til að skýra málið sem um ræddi. Persónuvernd væri eftirlitsstjórnvald í þeirri aðstöðu að geta óskað upplýsinga og skýringa í tengslum við viðkvæm mál sem yrðu ekki takmarkaðar með vísan til þagnarskyldu.
Mest lesið Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Innlent Halldór Blöndal borinn til grafar Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Erlent Stoltastur af veiðigjaldinu og telur aðrar skattabreytingar hafa lítil áhrif á heimilin Innlent Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Fleiri fréttir Stoltastur af veiðigjaldinu og telur aðrar skattabreytingar hafa lítil áhrif á heimilin Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Fylgi stjórnarflokkanna dalar Föðurnum í Suður-Afríku enn haldið sofandi Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Sjá meira