Bulsudiskó í Berufirði heppnaðist framar vonum Bjarki Ármannsson skrifar 3. ágúst 2014 15:45 Svavar Pétur og Berglind við Karlsstaði. Vísir/Anna Þórhildur
Það þarf ekki þúsundir manna og brekkusöng til að eiga ánægjulega stund um verslunarmannahelgina. Hjónin Svavar Pétur Eysteinsson og Berglind Häsler búa á Karlsstöðum í Berufirði og í gær stóðu þau fyrir fyrsta Bulsudiskói sögunnar. „Við runnum mjög blint í sjóinn með þetta,“ segir Berglind. „Við ákváðum með þriggja eða fjögurra daga fyrirvara að ráðast í þetta. Við hugsuðum að það væri rosa gaman ef það kæmu fimm, aðeins meira gaman ef það koma tuttugu. Svo komu svona kannski hundrað manns.“ Berglind og Svavar Pétur eru Reykvíkingar í húð og hár en fluttu á gamalt býli í Berufirðinum í vor. Hlaðan á býlinu var vígð með diskóinu en þegar þau hjúin tóku við henni var hún troðfull af heyi sem þurfti að fjarlægja. „Það var gaman af því við erum nýbúar hérna hvað það voru margir sem komu úr sveitinni og frá Djúpavogi. Fólk hafði orð á því að það væri gaman að þurfa ekki að fara lengra en þetta til að gera sér dagamun um verslunarmannahelgi,“ segir Berglind. Steiktar voru grænmetispulsur, eða bulsur, og hljómsveitin Eva steig flutti tónlist. Einnig steig Svavar Pétur á stokk og tók lagið, en hann er í hljómsveitinni Prins Póló sem gaf út sína aðra plötu í vor. Berglind segir að fyrsta Bulsudiskóið hafi heppnast framar vonum og útilokar ekki að það verði haldið aftur einhvern tímann síðar. „Ég hugsa að það verði alveg pottþétt. Það þarf líka ekki að vera um verslunarmannahelgi. Við erum viðburðaglatt fólk.“
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira