Skíðagöngufólk í stóru hlutverki 31. janúar 2014 18:00 Skíðaganga og skíðaskotfimi eru mjög vinsælar og sjónvarpsvænar greinar að sögn Jakobs Einars Jakobssonar, sem lýsir báðum greinum á Stöð 2 Sport. i MYND/VALLI
Í fyrsta skipti í 20 ár eiga Íslendingar fulltrúa í skíðagöngu á Vetrarólympíuleikum þegar Sauðkrækingurinn Sævar Birgisson keppir í sprettgöngu og 15 km skíðagöngu. Skíðagöngugreinar og skíðaskotfimi njóta alltaf mikilla vinsælda á Vetrarólympíuleikunum auk þess sem skíðaganga nýtur sífellt meiri vinsældar hérlendis. Jakob Einar Jakobsson mun lýsa greinunum á Stöð 2 Sport og býst hann við skemmtilegri og spennandi keppni. „Þessar greinar eru mjög sjónvarpsvænar íþróttir. Mikið er lagt upp úr allri myndvinnslu þannig að keppnin skili sér sem best heim til sjónvarpsáhorfenda. Það má einnig geta þess að skíðaskotfimi er önnur vinsælasta sjónvarpsíþróttin í Þýskalandi á eftir knattspyrnu og á undan Formúlunni. Skíðaganga og skíðaskotfimi geta verið ótrúlega spennandi greinar og mikið er lagt á keppendur.“ Keppt er í sex greinum karla og kvenna í skíðagöngu og fimm í skíðaskotfimi auk blandaðrar boðgöngu. „Sprettgangan sem Sævar keppir í er til dæmis virkilega spennandi og skemmtileg grein. Keppt er með útsláttarfyrirkomulagi þar sem allir keppendur byrja á því að skíða einn hring með 15 sekúndna millibili. Efstu 30 keppendurnir komast svo áfram og keppa í fimm riðlum þar sem sex keppendur keppa í braut. Tveir bestu í hverjum riðli fara svo áfram í undanúrslit og þannig koll af kolli.“ Aðspurður um möguleika Sævars segir Jakob vont að spá um þá. „Hann er auðvitað að keppa við gríðarlega sterka keppendur en honum hefur þó gengið vel á mótum undanfarið. Hann var meðal annars einn af fimmtán efstu á sterku móti í Svíþjóð fyrr í vetur. Á góðum degi gæti hann alveg komist inn í 30 manna úrslitin.“ Að sögn Jakobs verða heimamenn vafalaust mjög sterkir í greinunum tveimur. „Rússar hafa ekki mikið látið fyrir sér fara í Heimsbikarnum í vetur sem segir manni að það er örugglega svakalegt prógram í gangi hjá þeim til að toppa sig á heimavelli. Norðmenn eru efstir á heimslistanum í skíðagöngu en tveir efstu karlar og fjórar efstu konur koma þaðan. Auk þessara þjóða má búast við sterkum keppendum frá Svíþjóð og Tékklandi.“
Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Körfubolti Óábyrgt að láta leikmenn spila á hættulegum velli Sport Fleiri fréttir FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Óábyrgt að láta leikmenn spila á hættulegum velli Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Berglind næststigahæst á EM Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Dagskráin í dag: Snókerinn á sviðið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands