Innlent

Skagfirðingar vilja halda Vinnumálastofnun á Sauðárkróki

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Heimamenn harma brotthvarf Vinnumálastofnunar frá Sauðárkróki.
Heimamenn harma brotthvarf Vinnumálastofnunar frá Sauðárkróki. Fréttablaðið/GVA
Byggðaráð Skagafjarðar kveðst harma þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að loka starfsstöð sinni á Sauðárkróki. Stofnunin hefur sagt upp leigusamningi við sveitarfélagið um húsnæði í bænum.

„Ákvörðun um slíkt er í algjörri andstöðu við stefnu ríkisstjórnarinnar um fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni og á skjön við þá byggðastefnu sem boðuð hefur verið,“ segir byggðaráðið sem hvetur Vinnumálastofnun til að endurskoða ákvörðunina.- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×