Innlent

Máli Tony Omos enn frestað

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Mál hælisleitandans Tony Omos gegn Útlendingastofnun var tekið fyrir í dag hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Eftir stutta fyrirtöku var máli hans frestað til 7.apríl næstkomandi. Taldi lögmaður hans að nauðsynlegt væri að bíða eftir niðurstöðum úr rannsókn lögreglu til frekari gagnaöflunar.  Omos, sem var neitað um hæli hér á landi og vísað úr landi, krefst þess að sú ákvörðun verði ógilt og mál hans tekið fyrir efnislega.

Omos mætti ekki í fyrirtökuna, en hann er staddur í Sviss.

Mál Omos hefur vakið mikla athygli en í desember á síðasta ári var minnisskjali úr innanríkisráðuneytinu lekið til fjölmiðla þar sem fram kemur að hann sé grunaður um mansal.

Stefán Karl Kristjánsson, lögmaður Tony Omos, kærði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra og starfsmenn innanríkisráðuneytisins til lögreglu í kjölfar lekans. Telur lögmaðurinn að Tony hafi verið beittur ranglæti stjórnvalds við úrlausn eða meðferð máls, auk þess sem hann telur Tony hafa orðið fyrir ærumeiðingum og aðdróttunum af hálfu innanríkisráðuneytisins. Meint brot kunna að varða við sjö ákvæði hegningarlaga.


Tengdar fréttir

Hvatt til óháðrar rannsóknar á lekamálinu

Innanríkisráðherra segir ítarlega rannsókn innan innanríkisráðuneytisins og stofnana þess sýna að minnisblað um hælisleitanda hafi ekki komið úr ráðuneytinu. Mörður Árnason er með minnisblaðið.

Tony Omos stefnir íslenska ríkinu

Fyrirtöku í máli hælisleitandans Tony Omos um ógildingu á ákvörðun Útlendingastofnunar og úrskurði innanríkisráðuneytisins um synjun á hæli hér á landi var frestað í morgun.

Mótmæli vegna lekamálsins

Boðað hefur verið til mótmæla fyrir framan innanríkisráðuneytið í hádeginu á morgun.

Mun ekki tjá sig efnislega um lekamálið fyrr en niðurstaða liggur fyrir

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, hefur ítrekað beðist undan því að mæta í viðtal í Kastljósið til að ræða trúnaðarbrest sem kom upp í innanríkisráðuneytinu. Hún hafði áður samþykkt að veita Kastljósi viðtal í vikunni en hefur hætt við það í bili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×