Ölvísur ekki bara sport fyrir gamla karla Tinna Rós Steinsdóttir skrifar 28. febrúar 2013 14:15 "
Hingað til hefur það verið sport fyrir gamla karla að yrkja drykkjuvísur og það hefur varla verið gert af neinu viti síðustu 100 árin eða svo," segir Birkir Blær Ingólfsson, ölvísuskáld og meðlimur húsbands Stúdentakjallarans. Á morgun eru liðin 24 ár frá því að bjórbanninu var aflétt hér á Íslandi og hefur Stúdentakjallarinn efnt til ölvísukeppni í tilefni þess þar sem allir geta sent vísu til leiks. "Mér finnst að ef maður ætli á annað borð að yrkja ölvísu eigi hún að vera hrá, gamaldags og dýrt kveðin, auk þess sem hún verður auðvitað að vera rammíslensk," segir Birkir Blær en skilafrestur rennur út í hádeginu á morgun. Á laugardagskvöldið verður svo haldinn bjórfagnaður á Kjallaranum þar sem nokkrar vísur verða fluttar á listrænan hátt af nemum í LHÍ og höfundur bestu vísunnar fær viðeigandi verðlaun. Nokkrar vísur verða í framhaldinu valdar úr og hengdar upp á vegg í Stúdentakjallaranum. "Þá getur fólk komið og bent vinunum á afrakstur sköpunargleði sinnar," segir Birkir. Birkir Blær og félagar hans í húsbandi Stúdentakjallarans skelltu sjálfir í eina vísu og nefndu hana Öl og gleði eru bræður. "Hvorki öl né gleði er karlkyns en samt tölum við um bræður. Okkur finnst það falleg og nýmóðins hugsun að allir geti verið bræður, að minnsta kosti á djamminu," segir Birkir. Vísan hefur verið tekin upp og verður spiluð á hátíðinni á laugardaginn. "Falskur karlakór er lykillinn í flutningnum svo okkur fannst of flókið að taka hana í beinni á sviðinu," segir Birkir. Á hlekknum hér að ofan má nálgast umrædda drykkjuvísu.
Mest lesið Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Lífið „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Tíska og hönnun Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Ekki ofpeppast í áfenginu, plastpoka á táslurnar og forðast tjörnina Lífið samstarf Fleiri fréttir Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Sjá meira