Afmælisbarn og hetja frá Baab Tinna Rós Steinsdóttir skrifar 28. febrúar 2013 09:00 Vinir Jeffs Chang sannfærðu hann um að fagna afmælisdeginum með einum bjór, daginn fyrir inntökuprófið í læknisfræði. Hlutirnir fóru þó að sjálfsögðu ekki eins og ákveðið hafði verið.
21 árs afmælisdagur Jeff Chang kemur upp degi fyrir mikilvægasta próf lífs hans, inntökuprófið í læknisfræði. Þar sem hann er undir mikilli pressu úr ýmsum áttum, aðallega frá föður sínum, að gera góða hluti í prófinu ákveður hann að fresta öllum afmælisfögnuði þar til prófið er afstaðið. Vinir hans eru þó ekki alveg sammála þeim fyrirætlunum hans og sannfæra Jeff um að kíkja aðeins upp úr bókunum og koma með sér út í einn bjór til að skála fyrir deginum. Eins og við er að búast dregur þessi eini bjór töluverðan dilk á eftir sér og áður en Jeff veit af er öll framtíð hans í hættu. Myndin ber heitið 21 and Over og kemur frá þeim sömu og skrifuðu Hangover-myndirnar, The Change-Up og Ghosts of a Girlfriends Past til að nefna nokkrar. Myndin skartar Twilight-leikaranum Justin Chon í aðalhlutverki. Þrívíddarteiknimyndin Flóttinn frá Jörðu verður einnig frumsýnd um helgina. Myndin fjallar um hetjuna Scorch Supernova frá plánetunni Baab. Scorch er dáður af eigin kyni, Bláverjum, sem vita þó fæstir að flestöll hans hetjuverk skrifast á yngri bróður hans, Gary. Þegar neyðarkall berst frá plánetunni Jörð býðst Scorch til að taka að sér verkefnið þrátt fyrir að Gary styðji ákvörðunina ekki enda Jörðinni stjórnað af mönnum, verum sem ekki er vel við geimverur. Scorch tekur þó engum sönsum og heldur af stað. Hann er ekki fyrr lentur á Jörðinni en hann er handsamaður og nú er það á herðum Gary að koma honum til bjargar. Myndin er sýnd með íslensku og ensku tali.
Mest lesið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Fleiri fréttir Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Sjá meira