Lífið

Sonur Jackson orðinn fréttamaður á ET

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Prince Michael Jackson, sonur poppstjörnunnar Michael Jackson, er orðinn fréttamaður hjá afþreyingarsjónvarpsstöðinni Entertainment Tonight (ET).

Drengurinn, sem er einungis sextán ára gamall, tók sín fyrstu viðtöl í vikunni sem leið, en þau voru við leikarana James Franco og Zach Braff, auk þess sem hann spjallaði við kvikmyndaleikstjórann Sam Raimi.

Jackson er elsta barn poppstjörnunnar, sem lést árið 2009, og vonast hann til þess að nýja starfið verði honum lærdómsríkt, en hann hyggur á feril sem framleiðandi, leikstjóri, handritshöfundur og leikari.

Fyrsta viðtal Jackson verður sýnt á ET-sjónvarpsstöðinni í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.