Tim Howard hissa á sjálfstrausti Arons Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. september 2013 16:15 Mynd/Samsett
Aron Jóhannsson er í landsliðshópi Bandaríkjanna sem mætir Kostaríka í undankeppni HM 2014 aðfaranótt laugardags. Aron er mættur til San José í Kostaríka ásamt félögum sínum í bandaríska landsliðinu. Stuðningsmenn heimamanna tóku „vel“ á móti Bandaríkjamönnum á flugvellinum. Var eggjum meðal annars kastað í rúður flugvallarins. „Þessar móttökur voru af annarri stærðargráðu en ég hafði reiknað með,“ sagði Aron í samtali við bandaríska fjölmiðla fyrir æfingu liðsins í gær. Viðtalið er birt á heimasíðu MLS-deildarinnar. Landslið Bandaríkjanna er vant kuldalegum viðtökum í Mið- og Suður-Ameríku en þetta er fyrsta reynsla Arons af landsleikjum gegn grannþjóðunum. „Stuðningsmennirnir eru greinilega spenntir fyrir leiknum en það erum við líka.“ Aron spilaði sinn fyrsta landsleik gegn Bosníu í Sarajevó á dögunum. Um æfingaleik var að ræða þar sem Aron kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik. Hann þótti standa sig vel og segist afar sáttur með andrúmsloftið í herbúðum landsliðsins. „Það kemur mér ekki á óvart enda var Jozy (Altidore) búinn að segja mér hversu miklir toppmenn væru í liðinu,“ sagði Aron. Móttökurnar hafi verið frábærar og hann sé þegar orðinn einn af hópnum. Tim Howard, markvörður Everton í ensku úrvalsdeildinni og landsliðinu, hrósaði Aroni fyrir frammistöðu sína í leiknum gegn Bosníu og Hersegóvínu. „Hann er með ótrúlega mikið sjálfstraust. Ég veit ekki hvaðan það kemur. Ég hafði ekki svona mikið sjálfstraust þegar ég var strákur,“ sagði Howard.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Enski boltinn Lyon krækir í leikmann Liverpool Enski boltinn Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Fótbolti Dagskráin: Besta deildin ræður ríkjum Sport Fleiri fréttir Evrópudeildarleikur Blika í beinni á Sýn Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Frank Mill er látinn Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Natasha með slitið krossband Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Sjá meira