Fólk drekkur bjórinn fallegar 27. febrúar 2013 13:00 Bjórhátíð hefst á Kexi hosteli í dag og stendur hún fram á laugardag. Fréttablaðið/valli „
Bjórinn er alltaf að sækja meira og meira í sig veðrið, þá helst þessir sérstöku bjórar. Karlar og konur sýna þessu mikinn áhuga og hafa gaman af því að smakka góðan bjór,“ segir Böðvar Guðjónsson, talsmaður Kex hostels. Kexið fagnar 24 ára afmæli bjórsins með bjórhátíð sem hefst í dag og stendur til laugardags. Fjöldi brugghúsa, þar af tvö erlend, mun kynna vörur sínar á hátíðinni. Meðal þeirra brugghúsa sem taka þátt eru Migration Brewing Co. frá Portland, danska brugghúsið Mikkeller og íslensku brugghúsin Einstök, Vífilfell, Borg, Ölgerðin, Ölvisholt, Kaldi og áhugabruggararnir í Fágun. Hvert þeirra mun kynna vörur sínar á milli klukkan 17 og 19 þá daga sem hátíðin stendur og er gestum einnig boðið að smakka nýjungar. Sérstakur matseðill var settur saman fyrir veitingastaðinn Sæmund í sparifötunum, en réttirnir eiga að kallast á við þá bjóra sem eru á boðstólnum yfir hátíðina. Böðvar telur bjórdrykkju landans hafa breyst töluvert með auknum áhuga á sérbrugguðum bjór. „Fólk fær sér heldur einn góðan bjór og gerir það fallega og vel. Við á Kexinu erum miklir bjóráhugamenn og veljum bjórinn inn í stíl við matinn sem við bjóðum upp á.“ Dagskráin hefst klukkan 17 dag hvern fram að laugardegi. - sm
Mest lesið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Fleiri fréttir Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Sjá meira