Innlent

Gunnar Bragi fundaði með kollega sínum í Berlín

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, fundaði með Guido Westerwelle utanríkisráðherra Þýskalands í Berlín í dag. Ráðherrarnir ræddu meðal annars þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að gera hlé á aðildarviðræðum við Evrópusambandið.  Á sameiginlegum blaðamannafundi ráðherranna lýsti Westerwelle yfir fullum skilningi á afstöðu íslenskra stjórnvalda en ítrekaði að Þjóðverjar  hefðu alla tíð stutt aðildarumsókn Íslands.

Erlendir blaðamenn spurðu Gunnar Braga Sveinsson út í afstöðu íslenskra stjórnvalda gagnvart Edward Snowden. Ráðherra var meðal annars spurður hvort íslensk stjórnvöld hefðu verið í sambandi við bandarísk stjórnvöld vegna málsins en því svaraði ráðherra neitandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×