Silvía Svíadrottning sökuð um þöggun Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 11. október 2013 09:00 Karl Gústaf, konungur Svíþjóðar, og Silvía drottning. NordicPhotos/Getty
Silvía Svíadrottning er í nýrri bók, Drottningens hemlighet, harðlega gagnrýnd fyrir að draga úr aðgerðum föður síns á tímum nasista í Þýskalandi. Bókin er eftir sjónvarpsfréttamanninn Johan Åsard og er framhald á þáttum sjónvarpsstöðvarinnar TV4 um drottninguna og föður hennar, Walther Sommerlath, í nóvember 2010. Í sjónvarpsþáttunum kom fram að Sommerlath hefði árið 1934 gengið í flokk nasista og árið 1939 tekið yfir verksmiðju í Berlín sem var í eigu gyðingsins Efim Wechsler sem síðan flúði frá Þýskalandi til Brasilíu. Í frétt á vef Dagens Nyheter segir að drottningin hafi fengið ríkisskjalavörð Svíþjóðar til að kanna málið og hlutverk föður hennar. Í kjölfarið sagði Silvía að faðir hennar og gyðingurinn hefðu gert með sér viðskiptasamning. Faðir hennar hefði fengið verksmiðjuna og gyðingurinn jörð í Brasilíu í skiptum. Faðir hennar hefði auk þess hjálpað Wechsler við að flýja frá Þýskalandi. Í bók sinni greinir sjónvarpsfréttamaðurinn frá gögnum sem sýna að gyðingurinn hafi fengið vegabréfsáritun til Brasilíu mörgum mánuðum áður en samningurinn var gerður. Auk þess hafi verðið fyrir fyrirtækið verið langt undir markaðsvirði þess. Jafnframt kemur fram að drottningin hafi ritað áhrifamiklum persónum fjölda bréfa í því skyni að beita gagnrýnendur þrýstingi.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Fleiri fréttir Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street Sjá meira