Endurkoma aldarinnar hjá íslenska landsliðinu Henry Birgir Gunnarsson í Bern skrifar 7. september 2013 07:15 Jóhann Berg Guðmundsson fagnar fyrsta marki sínu af þremur í 4-4 jafntefli á móti Sviss í gær. Jóhann Berg hljóp beint til Gylfa Þórs Sigurðssonar sem lagði upp tvö fyrstu mörkin hans með einstökum sendingum. Birkir Bjarnason og Aron Einar Gunnarsson eru ekki langt undan. Fréttablaðið/Valli
Áhorfendur bauluðu og sátu furðu lostnir á Stade de Suisse í gær eftir að íslenska landsliðið nældi í 4-4 jafntefli á lygilegan hátt. Strákarnir áttu stigið fyllilega skilið eftir stórkostlega frammistöðu. Íslenska liðið byrjaði leikinn með miklum látum. Setti heimamenn undir pressu og þeir höfðu varla snert boltann er Ísland komst yfir. Gylfi átti þá flotta sendingu í teiginn sem Jóhann Berg tók við. Hann var ekkert að tvínóna við hlutina heldur negldi boltanum upp í skeytin. Stórkostlegt mark og ótrúleg byrjun á leiknum. Hið sókndjarfa lið Svisslendinga lét markið ekki slá sig út af laginu og hóf mikla sókn að marki Íslands. Þeir voru þó ekki að skapa nein opin færi. Eftir um 14 mínútna leik jafnaði þó Lichtsteiner metin. Hann lenti þá í skallaeinvígi við honn smávaxna Ara Frey í teignum og var ekki í miklum vandræðum með að skora. Íslenska liðið brást við þessu marki af kjarki og hóf að pressa á nýjan leik. Það var nokkuð gegn gangi leiksins að Schär skyldi koma Sviss yfir. Markið var af ódýrari gerðinni eftir að íslenska liðinu mistókst að hreinsa frá marki. Skömmu síðar veitti hinn magnaði bakvörður Juventus, Lichtsteiner, Íslandi mikið rothögg með sínu öðru marki. Hann og Shaqiri náðu að tvímenna á bakvörðinn og Lichtsteiner skoraði með mögnuðu skoti. Íslenska liðið var búið að fara sérstaklega yfir þetta atriði en þarna brást skipulagið algjörlega. Snemma í síðari hálfleik lét Birkir sóla sig upp úr skónum og síðan braut hann klaufalega af sér. Dzemaili fór á punktinn og skoraði örugglega. Niðurlæging í uppsiglingu í Bern. Kolbeinn Sigþórsson var þó ekki hættur og skoraði mark upp úr frábæru einstaklingsframtaki. Eiður Smári kom af bekknum í hálfleik. Líkt og venjulega kom nýtt líf í sóknarleik liðsins með hans innkomu. Strákarnir voru alltaf líklegir í sínum sóknarlotum og Jóhann Berg minnkaði muninn í eitt mark rúmum 20 mínútum fyrir leikslok. Aftur átti Gylfi stoðsendinguna og Jóhann kláraði færið sitt aftur með stæl. Það var enn von gegn liðinu sem var aðeins búið að fá á sig eitt mark fyrir þennan leik. Það var eitthvað í loftinu. Strákarnir héldu áfram að pressa og tóku völdin á vellinum. Það bar árangur í uppbótartíma er Jóhann Berg fullkomnaði þrennuna með enn einu stórkostlega markinu. Ótrúleg frammistaða hjá íslenska liðinu í þessum leik sem seint mun gleymast. Strákarnir sýndu kjark, þor og ódrepandi baráttuanda en var refsað grimmilega af frábæru liði. Þessi leikur kenndi okkur þó að varnarleikurinn er langt frá því að vera nógu góður og mennirnir í vörninni eru sumir hverjir einfaldlega ekki nógu góðir. Þeir eru númeri of litlir. Íslenska liðið er í raun eins og tvö lið. Frábært sóknarlið og lélegt varnarlið. Þessi eldmóður og trú sem íslenska liðið sýndi í gær er til marks um nýja tíma. Þetta lið kom á erfiðan útivöll, hætti aldrei og uppskar eins og það sáði að lokum. Ógleymanleg frammistaða hjá íslenska liðinu, sem hefur ekki sagt sitt síðasta í þessari keppni.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Fótbolti „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Fótbolti Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Fótbolti Segja hegðun Paragvæ til skammar Fótbolti Fleiri fréttir Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Mbappé: Héldu sennilega að við myndum mæta í smóking Skutu upp flugeldum til að trufla nætursvefn ensku leikmannanna Neitar því að leikmennirnir sínir hafi notað Viagra Segja hegðun Paragvæ til skammar Trump þakkar FIFA fyrir Balogun fær Ronaldo-meðferð hjá FIFA og spilar gegn Belgum Real Madrid staðfestir komu Hollendingsins Rígur úr ensku úrvalsdeildinni heldur áfram í kvöld Segir Klopp taka við þýska landsliðinu Segir skilið við bæði landslið og félagslið Maður dagsins á HM: „Býflugan“ fann gleðina aftur í Katalóníu Sautján ára hetja Breiðabliks: Kemur þegar maður trúir á Guð og sig sjálfan Sjáðu mörk og atvik helgarinnar í Bestu deildinni „Gleður mitt Blikahjarta“ Dramatík í kringum enska landsliðið: Eldingar, hótelhávaði og njósnir „Með ólíkindum að við höfum tapað þessum leik“ Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Afríska innrásin á HM stöðvuð í fæðingu Skoraði eitt fallegasta mark HM og leitaði uppi kærustuna í stúkunni Skítabrögð Paragvæja stöðvuðu ekki Frakka Meira en hundrað lögreglumenn fyrir utan HM-hótel Englands Solbakken neitar að hafa sýnt Ancelotti vanvirðingu Sjá meira