Innlent

Nýstárlegar framkvæmdir við HÍ

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Háskóli Íslands
Háskóli Íslands mynd úr safni
Óvanalegar framkvæmdir standa nú yfir fyrir neðan Aðalbyggingu Háskóla Íslands.

Þar er verið að koma fyrir jarðvatnslögn sem mun leiða hreint frárennslisvatn frá Húsi íslenskra fræða vestan við Suðurgötu niður í Húsatjörn í friðlandinu norðan við Norræna húsið segir á heimasíðu Háskóla Íslands.

Grunnvatnsstaðan undir Húsi íslenskra fræða er há og því var ákveðið að leiða rigningarvatnið niður í Húsatjörn. Þannig yrði vatnsbúskapurinn í Húsatjörn bættur í stað þess að leiða vatn frá byggingunni í holræsakerfi og þaðan út í sjó.

Hús íslenskra fræða er fyrsta byggingin á háskólalóðinni sem flokkast undir vistvænar byggingar.

Það felur í sér að hönnun og rekstur hússins eru til þess fallin að draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfið, en stuðla frekar að umhverfisvænum lausnum.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki í þessum mánuði.

Eitt af markmiðum í sjálfbærni- og umhverfisstefnu Háskóla Íslands sem samþykkt var í háskólaráði snemma á síðasta ári, er að nýbyggingar á lóðinni verði hannaðar á vistvænan hátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×