Lífið

Reyndu að fá PJ Harvey

PJ Harvey Breska söngkonan var í miklu uppáhaldi hjá Kurt Cobain.
PJ Harvey Breska söngkonan var í miklu uppáhaldi hjá Kurt Cobain.
Dave Grohl, höfuðpaur Foo Fighters, reyndi að fá bresku tónlistarkonuna PJ Harvey til að koma fram með eftirlifandi meðlimum Nirvana á tónleikum í London.

„Fyrir tónleikana í London vorum við að velta fyrir okkur tónlistarfólki til að bjóða að koma fram með okkur, því Stevie Nicks og John Fogerty komust ekki. Einhverjum datt í hug að fá PJ Harvey til að taka Nirvana-lag með okkur. Kurt dýrkaði hana og við dýrkum hana," segir Grohl og bætir við að ætlunin hafi verið að söngkonan tæki lagið Milk It af In Utero, þriðju plötu Nirvana. Harvey átti þó ekki heimangengt og því varð ekkert úr samstarfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.