Lífið

Kominn á samning hjá norska þjóðleikhúsinu

Ívar Örn Sverrisson skrifaði undir samning við norska þjóðleikhúsið í gær og tekur þátt í uppsetningu þess á Ronju Ræningjadóttur næsta haust.
Ívar Örn Sverrisson skrifaði undir samning við norska þjóðleikhúsið í gær og tekur þátt í uppsetningu þess á Ronju Ræningjadóttur næsta haust.
„Ég er bara í skýjunum með þetta, frábært að fá svona tækifæri á silfurfati,“ segir leikarinn Ívar Örn Sverrisson en hann skrifaði undir samning við norska Þjóðleikhúsið í gær.

Ívar mun taka þátt í uppsetningu leikhússins á barnaleikritinu Ronju ræningjadóttur sem verður frumsýnt í haust. Leikstjórinn er Cecilie Mosli en Ívar hefur áður unnið með henni.

„Þetta kom nokkuð fljótt upp en það var haft samband við mig í síðustu viku og ég spurður hvort ég væri laus næsta haust. Svo var mér bara boðið hlutverk án þess að fara í prufur eða neitt sem var góð tilbreyting,“ segir Ívar, sem hefur farið í ófáar prufurnar síðan hann flutti út til Noregs fyrir tæpum þremur árum. „Mér datt ekki einu sinni í hug að sækja um hjá Þjóðleikhúsinu þegar ég flutti hingað fyrst svo það að fá samning fyrirhafnarlaust er alger draumur.“

Uppsetningin á að vera stór og mikil með bæði söng og sjónrænum fimleikaatriðum. Ívar grunar að vegna bakgrunns síns í fýsísku leikhúsi og dansi hafi hann fengið hlutverkið en hann veit ekki enn nákvæmlega hvaða hlutverk hann fær. Spurður hvort hann sé búinn að ná góðum tökum á syngjandi norskunni svarar Ívar hlæjandi. „Ég vona að ég sé farinn að hljóma allt í lagi, ég er allavega farinn að fá hlutverk á norsku svo það boðar gott.“ - áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.