Lífið

Úlfur sigraði Tom Selleck-keppnina

Úlfur Kristjánsson þótti skarta fallegustu mottunni. Mynd/Valli
Úlfur Kristjánsson þótti skarta fallegustu mottunni. Mynd/Valli
Hin árlega Tom Selleck-mottukeppnin fór fram á skemmtistaðnum Boston á miðvikudagskvöldið. Þar keppti fríður flokkur um titilinn Flottasta motta landsins, en keppnin er haldin í tengslum við Mottumars Krabbameinsfélagsins. Björn Jörundur Friðbjörnsson var kynnir keppninnar. Valgarður Gíslason ljósmyndari smellti nokkrum myndum af keppendum á miðvikudagskvöld.
Leifur Rögnvaldsson ljósmyndari varð í 2. sæti.
Friðrik Atlason var ánægður með 3. sætið í keppninni.
Ragnar Guðmundsson hlaut verðlaunin Thule-motta ársins; sá sem mest þykir líkjast leikaranum Tom Selleck.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Frosti Gringó fékk verðlaun fyrir hýjung ársins.
Gestirnir skemmtu sér vel eins og fyrri ár.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.