Lífið

M.I.A. í forræðisdeilu

M.I.A. Söngkonan á í harðvítugri forræðisdeilu. nordicphotos/getty
M.I.A. Söngkonan á í harðvítugri forræðisdeilu. nordicphotos/getty
Söngkonan M.I.A. á í harðvítugri forræðisdeilu við barnsföður sinn, Benjamin Bronfman, sem kemur úr einni ríkustu fjölskyldu Bandaríkjanna.

Hin 37 ára M.I.A., sem heitir réttu nafni Mathangi „Maya“ Arulpragasam, var sett í nálgunarbann gegn fjögurra ára syni sínum Ikhyd og henni bannað að fljúga með hann frá New York til London,“ eins og segir í frétt London Evening Standard.

Í annarri frétt sem New York Post birti ákvað Bronfman, sem er sonur tónlistarmógúlsins Edgars Bronfman Jr., að leita réttar síns eftir að söngkonan hótaði að fjarlægja son þeirra úr skóla í Brooklyn og fljúga með hann til London þar sem hún býr. „Ben, þú getur ekki tekið son minn frá mér,“ skrifaði M.I.A. á Twitter eftir að nálgunarbannið hafði verið sett.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.