Sumir leikstjórarnir fastir í fermingarveislum 20. mars 2013 14:00 Þ. Tjörvi Þórsson, verkefnastjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands, vonast til að íslendingar um land allt fjölmenni í bíó um helgina. Mynd/VALLI „
Elsta myndin sem við sýnum er frá 1962 svo þetta spannar ansi langt tímabil,“ segir Þ. Tjörvi Þórsson, verkefnastjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Í tilefni af hækkun framlaga í Kvikmyndasjóð Íslands ætlar Kvikmyndamiðstöðin og íslenskt kvikmyndagerðarfólk að bjóða landsmönnum í bíó nú um helgina en á fjórða tug íslenskra kvikmynda verða sýndar víðs vegar um landið. Leikstjórar og aðstandendur sýninganna hafa margir hverjir boðað komu sína út á land og munu svara spurningum að sýningum loknum. Þar á meðal má nefna þá Óskar Jónasson, sem verður á Ólafsfirði á laugardag ásamt mynd sinni um Hetjur Valhallar, og Rúnar Rúnarsson, leikstjóri Eldfjalls, sem fer austur á Raufarhöfn á sunnudag. Tjörvi segir það hafa verið dálítið maus að púsla þessu saman en að spennan sé mikil, enda bíósýningar fátíðar á landsbyggðinni. „Leikstjórarnir voru líka allir mjög áhugasamir þó svo sumir þeirra séu erlendis og aðrir fastir í fermingarveislum.“ Hann segir að þær myndir sem sýndar verða í Háskólabíói verði í enn betri gæðum en áður hefur sést. „Þessar myndir eru í alveg nýjum útgáfum. Það er búið að hreinsa þær og litgreina upp á nýtt og eru nú bara eins og Hollywood-myndirnar,“ segir Tjörvi, en þær myndir sem um ræðir eru „Skytturnar“, „79 af stöðinni“, „Húsið“, „Hrafninn flýgur“, „Rokk í Reykjavík“ og „Englar alheimsins“. Nánari upplýsingar má finna á www.kvikmyndamidstod.is. -ka
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira