Lífið

Gaga leitar sér að nýrri íbúð

Söngkonan er að leita að nýrri íbúð í New York.
Söngkonan er að leita að nýrri íbúð í New York. Nordicphotos/Getty
Lady Gaga er að leita sér að íbúð í Manhattan í New York. Samkvæmt blaðinu The New York Post hefur poppdívan meðal annars skoðað tæplega 6 milljón dollara þakíbúð með kaup í huga.

Hin 26 ára Gaga er uppalin í New York og hefur lýst því yfir að hún vilji aldrei flytja frá borginni. Hún er þessa dagana að jafna sig eftir mjaðmaaðgerð sem hún gekkst undir og notar hjólastól til að komast ferða sinna. Frítíma sinn notar hún til að finna draumaíbúðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.