Sigur Rós gaf UNICEF myndarlegan styrk Freyr Bjarnason skrifar 15. mars 2013 06:00 Jónsi uppi á sviði í Brixton Academy fyrir skömmu. Sigur Rós styrkti Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna um 250 þúsund krónur. nordicphotos/Getty „
Við erum mjög þakklát og ánægð með þetta,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, á Íslandi. Umboðsmaður Sigur Rósar kom færandi hendi á skrifstofu samtakanna í vikunni og afhenti þeim 250 þúsund krónur sem söfnuðust á tónleikaferð hljómsveitarinnar um Evrópu sem er nýlokið. Þar spilaði hún fyrir framan rúmlega 100 þúsund manns á nítján tónleikum. Í sölubás á hverjum tónleikum fyrir sig gátu þeir tónleikagestir sem voru snöggir til tryggt sér áritaða, notaða muni frá Sigur Rós, þar á meðal trommuskinn, trommukjuða eða gítarneglur, gegn ákveðnu lágmarksgjaldi. Allur ágóðinn rann til UNICEF en hljómsveitin er samtökunum að góðu kunn. Árið 2006 hélt hún til Svasílands í Afríku til að skoða HIV-verkefni UNICEF á svæðinu. Þar heimsóttu þeir félagar einnig miðstöð fyrir börn sem höfðu misst foreldra sína af völdum alnæmis, sóttu fund stuðningshóps HIV-smitaðra og fóru á leiklistarhátíð barna. „Þetta er bara frábært. Sigur Rós þekkir starf UNICEF vel. Þeir hafa tengingu við okkur og eru búnir að vera frábærir í gegnum tíðina við að aðstoða okkur og vekja athygli fólks á neyð barna í heiminum,“ segir Sigríður. Stærri pakki með notuðum og árituðum munum var í boði á þremur síðustu tónleikum Sigur Rósar í Brixton Academy í London, eða trommukjuði frá Orra Páli Dýrasyni, brotinn sellóbogi frá söngvaranum Jónsa og gítarnögl frá Georg Holm. Lágmarksgjald var 150 pund, um þrjátíu þúsund krónur. Fram undan hjá Sigur Rós er tónleikaferð um Norður-Ameríku sem hefst í næstu viku. Þar spilar sveitin í fyrsta sinn í Madison Square Garden í New York 25. mars fyrir framan tólf þúsund manns. Spilamennska á Coachella-hátíðinni í Kaliforníu er einnig fyrirhuguð 13. og 20. apríl. Verið er að hljóðblanda nýjustu plötu hljómsveitarinnar og er hún væntanleg í búðir síðar á þessu ári.
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira