Lífið

Outlandish nýjasta atriðið á hátíðinni

Meðlimir Outlandish þykja góð fyrirmynd í baráttunni gegn kynþáttafordómum vegna þess hvað þeir vinni vel saman þrátt fyrir mismunandi bakgrunn og trú.
Meðlimir Outlandish þykja góð fyrirmynd í baráttunni gegn kynþáttafordómum vegna þess hvað þeir vinni vel saman þrátt fyrir mismunandi bakgrunn og trú. nordicphotos/getty

Dagskráin á Keflavík Music Festival verður glæsilegri með hverjum deginum og hefur nú verið tilkynnt um komu dönsku strákana í Outlandish.

Sveitin samanstendur af þeim Isam Bachiri, Lenny Martinez og Waqas Qadri og hafa þeir verið lengi að, þrátt fyrir ungan aldur. „Þetta er ein stærsta hljómsveit Danmerkur um þessar mundir. Það er svo merkilegt að það eru komin hátt í 20 ár síðan þeir byrjuðu en eru núna fyrst að slá rækilega í gegn,“ segir Óli Geir og hljómsveitin því sönnun þess að þrautseigja borgar sig stundum.

Fimmta og nýjasta plata sveitarinnar, Warrior/Worrier hefur náð gríðarlegum vinsældum og tiltillag plötunnar eitt vinsælasta lag þeirra frá upphafi. Einnig náði hljómsveitin miklum vinsældum fyrir nokkrum árum með útgáfu sinni af lagi rapparans Khaled, Aïcha.

Allir meðlimir hljómsveitarinnar eru uppaldir í Danmörku en eiga rætur að rekja til mismunandi landa. Isam kemur frá Marokkó, Waqas frá Pakistan og Lenny frá Hondúras og Kúbu. Allir eru þeir líka trúaðir en á meðan Isam og Waqas eru íslamstrúa er Lenny kaþólikki. Þrátt fyrir þennan menningarmun hafa strákarnir verið vinir frá blautu barnsbeini og þykja góð fyrirmynd í baráttunni gegn kynþáttafordómum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.