Outlandish nýjasta atriðið á hátíðinni 9. mars 2013 06:00 Meðlimir Outlandish þykja góð fyrirmynd í baráttunni gegn kynþáttafordómum vegna þess hvað þeir vinni vel saman þrátt fyrir mismunandi bakgrunn og trú. nordicphotos/getty
Dagskráin á Keflavík Music Festival verður glæsilegri með hverjum deginum og hefur nú verið tilkynnt um komu dönsku strákana í Outlandish. Sveitin samanstendur af þeim Isam Bachiri, Lenny Martinez og Waqas Qadri og hafa þeir verið lengi að, þrátt fyrir ungan aldur. „Þetta er ein stærsta hljómsveit Danmerkur um þessar mundir. Það er svo merkilegt að það eru komin hátt í 20 ár síðan þeir byrjuðu en eru núna fyrst að slá rækilega í gegn,“ segir Óli Geir og hljómsveitin því sönnun þess að þrautseigja borgar sig stundum. Fimmta og nýjasta plata sveitarinnar, Warrior/Worrier hefur náð gríðarlegum vinsældum og tiltillag plötunnar eitt vinsælasta lag þeirra frá upphafi. Einnig náði hljómsveitin miklum vinsældum fyrir nokkrum árum með útgáfu sinni af lagi rapparans Khaled, Aïcha. Allir meðlimir hljómsveitarinnar eru uppaldir í Danmörku en eiga rætur að rekja til mismunandi landa. Isam kemur frá Marokkó, Waqas frá Pakistan og Lenny frá Hondúras og Kúbu. Allir eru þeir líka trúaðir en á meðan Isam og Waqas eru íslamstrúa er Lenny kaþólikki. Þrátt fyrir þennan menningarmun hafa strákarnir verið vinir frá blautu barnsbeini og þykja góð fyrirmynd í baráttunni gegn kynþáttafordómum.
Mest lesið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Laufey á landinu Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira