Lífið

Mávurinn skilinn eftir heima

Tinna Rós Steinsdóttir skrifar
Hafði betur Hera er hér með keppinauti sínum úr Viña Del Mar-söngvakeppninni, Francisco Leon. Hún hafði betur en hann í keppninni og kom heim með Mávastyttuna meðan hann fór heim tómhentur.
Hafði betur Hera er hér með keppinauti sínum úr Viña Del Mar-söngvakeppninni, Francisco Leon. Hún hafði betur en hann í keppninni og kom heim með Mávastyttuna meðan hann fór heim tómhentur. mynd/Valgeir magnússon
„Ég hugsa nú að mávurinn góði verði bara eftir heima. Ég býst við svo miklu stuði þarna og hann er með svo beitta vængi að það gæti endað illa,“ segir söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir.

Eins og flestum er kunnugt stóð Hera Björk uppi sem sigurvegari í Viña Del Mar-söngvakeppninni í síðustu viku og fékk í verðlaun forláta mávastyttu og rúmar fjórar milljónir íslenskra króna. Hera Björk er nú komin aftur heim á klakann og vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að slá upp heimkomupartíi fyrir hana á Spot í Kópavogi í kvöld. Hera mun sjálf sjá um að skemmta gestum en henni til aðstoðar verður Haffi Haff. Að tónleikum loknum þeyta umboðsmenn hennar og vinir, Valli Sport og Örlygur Smári, svo skífum fram eftir kvöldi. „Ég ætla að taka mín bestu lög og að sjálfsögðu verður Because You Can þar á lista,“ segir hún. „Það er aldrei að vita nema ég splæsi í eitt eða tvö erindi á spænsku,“ bætir hún við, en Viña Del Mar-keppnin er með stærri keppnum hins spænskumælandi heims.

Hera Björk segist ekki vera búin að ákveða í hverju hún ætli að vera á tónleikunum, en rauði kjóllinn sem hún klæddist á sviðinu í Síle verði þó ekki fyrir valinu. „Hann er kominn í hreinsun greyið, enda alveg búinn að vinna fyrir því að fá smá hvíld,“ segir hún og hlær.- trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.